Glæpasérfræðingurinn Ardavan Khoshnood, dósent við háskólann í Lundi, varar Svía við því að árið 2025 verði kolsvart metár sprengjuhryðjuverka í Svíþjóð. Árið byrjaði eins og síðasta ár endaði: Eitt sprengjuhryðjuverk á hverjum degi. Lögreglan segist ekki geta komið í veg fyrir ofbeldið og hvetur „alla sem eru utandyra á kvöldin og næturnar til að sýna ítrustu varkárni.“
Gunnar Strömmer dómsmálaráðherra Svíþjóðar kallaði lögregluna á neyðarfund á föstudaginn vegna allra sprengjuódæða að undanförnu. Lögreglan hefur sent viðvörun til almennings að sýna ítrustu varkárni utandyra á kvöldin og næturnar.
Ásdandið á eftir að versna
Dósent Ardavan Khoshnood (á mynd) segir Svíþjóð einsdæmi í sprengjuhryðjuverkum miðað við önnur vestræn lönd. Hann óttast að ódæðunum muni fjölga verulega í ár. Hann segir í viðtali við Expressen:
„Við sjáum að það er ólga í glæpahópunum. Lögreglan hefur verið árangursrík hvað varðar fjölda skotárása en við vitum að glæpamennirnir ætla ekki að draga sig í hlé, þannig að ég held að þeir séu að reyna að finna aðrar leiðir. Það getur einnig verið léttara fyrir ódæðismennina að komast upp með sprengingar, samanborið við skotárásir.“
Unglingar í biðröð að komast í sprengjudeildina
Max Åkerwall segir í viðtali við SVT:
„Ég óska þess að við gætum gefið tryggingu fyrir því að meira yrði ekki sprengt. En ég segi það öruggt mál, að við gerum allt í okkar valdi til að reyna að stöðva það sem er í gangi.“
Hann segir það nær vonlaust að ráða við ofbeldið því oft séu sprenguódæðin pöntuð erlendis frá og framkvæmd af ungum glæpamönnum í Svíþjóð:
„Oftast er það unglingur, strákur eða stelpa, sem framkvæma verknaðinn.“