Carney er algjör glóbalizti – stýrir Kanada eins og einkafyrirtæki

Í nýju viðtali við Karl Gunnarsson, flugstjóra í Kanada, eru stjórnarhættir Mark Carney forsætisráðherra Kanada rýndir en hann er í miklu uppáhaldi hjá Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands, sem stundar nám sem young globalist leader hjá Davos klíku Klaus Schwab. Ursula von der Leyen tókst að bjarga hneykslinu með nei Íslands á síðustu stundu og fékk Carney til að vera sérstakan gest við setningu nýs tímabils í stjórn ESB. Þar lofaði von der Leyen Kanada að fá að koma inn í ESB sem „aukameðlimur” sem er óstjórntækt hugtak hjá ESB. Finnst hvergi neins staðar svo ljóst er að Kanada er notað sem leiktjöld í heimsvaldastefnu ESB-klíkunnar.

Karl Gunnarsson segir Carney stjórna Kanada eins og fyrirtæki en ekki sem kjörinn þjóðarleiðtogi. Hann lýsir Carney sem algjörum glóbalizta sem svífist einskis í viðskiptum. Carney nýtur engu að síður trausts hjá fjölmörgum Kanadamönnum en Karl varar við framhaldinu og tekur sem dæmi að rætt sé á þinginu að takmarka verulega verkfallsrétt launþega.

Nýlega var eldra fólk handtekið sem mótmælti á afar friðsaman hátt fyrir utan þinghúsið, þannig að stöðugt virðist grynnka á málfrelsi og mannréttindum íbúanna. Karl Gunnarsson segir enda Kína vera farið að hafa ansi mikil áhrif í landinu og stjórni hálfpartinn gegnum Carney.

Það sést ekki síst á deilunum við Trump, forseta Bandaríkjanna, en Karl segir sífelldar breytingar Trumps á tollum vera óþægilegur ljár í þúfu fyrir fyrirtæki sem þurfa að geta skipulagt fram í tímann.

Ljóst er að Kanada hefur valið Kína fram yfir Bandaríkin og ef hlutirnir eru settir í samhengi við öryggiskröfur Bandaríkjanna, þá má skilja erfiðleikana í samskiptum við Bandaríkjastjórn.

Trump hefur nýverið gert samning við Grænland og Danmörk til að halda burtu óvilhöllum ríkjum frá því að koma nálægt Bandaríkjunum og það sama ætti því að gilda um Kanada.

En þar eru Kínverjar í sókn.

Hlustaðu á viðtalið í spilaranum með því að smella á spilarann hér að neðan:

Viðtal við Karl Gunnarsson, flugstjóra í Kanada