Klaus Schwab var samanbitinn og greinilega ekki hlátur í hug, þegar hann kynnti Donald Trump sem talaði á skjá frá Hvíta húsinu til þátttakenda á ráðstefnu glóbalizta í Davos. Klaus bauð Trump velkominn að ávarpa 3.000 stjórnmála- og viðskiptaleiðtoga frá yfir 130 löndum sem eru saman komnir á glóbaliztaráðstefnunni í Davos.
Hér að neðan eru tilvitnanir í lausri þýðingu í ræðu Bandaríkjaforseta:
„Fyrir þremur dögum þá sór ég embættiseiðinn og gullöld hófst í Bandaríkjunum…Sumir stjórnmálaspekingar og jafnvel sumir af svo kölluðum óvinum mínum sögðu að þetta hafi verið afdrifaríkasti kosningasigurinn í 129 ár. Það er hreint afbragð sem heimurinn hefur orðið vitni að síðustu 72 klukkutímana sem er ekkert minna en bylting skynseminnar.“
Ömurleg aðkoma ríkisbúskaparins
Trump ræddi ömurlega viðtöku á ríkisbúskapnum sem fyrrverandi stjórn hefur keyrt í botn nánast á öllum sviðum. Ærin verk eru að vinna eins og fyrstu forsetaskipanirnar segja til um:
„Stjórnvöld vinna af áður óþekktu kappi til að laga óreiðuna sem við höfum erft frá algjörlega vanhæfum hópi fólks …við horfumst í augu við efnahagslega ringulreið af völdum misheppnaðrar stefnu síðustu ríkisstjórnar undanfarin fjögur ár….. Biden forseti missti algjörlega stjórn á því sem var að gerast í landinu okkar sérstaklega með allri verðbólgu og ástandinu á landamærum okkar.
„Vegna þessarar hrikalegu stefnu eru heildarútgjöld ríkisins á þessu ári 1,5 billjónum dollurum hærri en áætlað var…. kostnaðurinn við að borga skuldirnar eru yfir 230% hærri en áætlað var ár 2020. Verðbólgan sem við erum að erfa er áfram 50% hærri en markmiðið sem er líklega hæsta verðbólga í sögu lands okkar. Þess vegna hef ég frá því ég tók við embætti gripið til skjótra aðgerða til að snúa við allri þessari róttæku vinstri stefnu sem skapaði þessa hörmung, sérstaklega innflytjendaglæpi og verðbólgu.“
10 eldri reglugerðir felldar úr gildi fyrir hverja eina nýja sem er samþykkt
Trump kom inn á búrókratískt stjórnkerfi Bandaríkjanna og sagði:
„Biden-stjórnin lagði 50.000 dollara til viðbótar í reglugerðarkostnað á herðar sérhvers bandarísks meðalheimilis á síðustu fjórum árum. Ég hef lofað að fella 10 eldri reglugerðir úr gildi fyrir hverja nýja samþykkta reglugerð. Það mun fljótlega færa bandarískum fjölskyldum mörg þúsund dollara til baka og losa enn frekar sköpunarkraft úr læðingi í efnahagskerfi okkar.“
„Við munum standa fyrir mestu skattalækkun í sögu Bandaríkjanna, stórfelldar skattalækkanir fyrir vinnandi fólk og fjölskyldur þeirra og miklar skattalækkanir fyrir innlenda framleiðendur… Skilaboð mín til allra fyrirtækja í heiminum eru mjög einföld: komið og framleiðið vörur í Bandaríkjunum og þið munuð fá eina lægstu skatta á jörðinni.“
Tollar á innfluttar vörur
Trump ræddi um tolla á innfluttar vörur til Bandaríkjanna:
„Ef þú framleiðir ekki vöruna þína í Bandaríkjunum, sem eru þín forréttindi, þá þarftu einfaldlega að borga mismunandi tolla samkvæmt gjaldskrá sem mun beina hundruðum milljörðum dollara og jafnvel trilljónum dollara inn í ríkissjóð okkar. Það mun styrkja efnahag okkar og borga niður skuldir. Undir Trump stjórninni verður enginn betri staður á jörðinni til að skapa störf, byggja verksmiðjur og þróa fyrirtæki en hérna í gömlu góðu Bandaríkjunum.“
Fjárfestingar erlendra aðila í Bandaríkjunum
„Strax eftir kosningarnar jókst bjartsýni lítilla fyrirtækja um 41 stig á einum mánuði sem er það mesta sem hefur mælst nokkru sinni…einn banki hefur tilkynnt um 100 – 200 milljarða dollara fjárfestingu í bandaríska hagkerfinu vegna kosningaúrslitanna. Fyrir aðeins tveimur dögum síðan tilkynnti Oracle banki um 500 milljarða dala fjárfestingu í gervigreindarinnviðum. Önnur fyrirtæki hafa sömuleiðis tilkynnt milljarða ofan á milljarða fjárfestingar sem samanlagt verða trilljónir dollarar í fjárfestingum í Bandaríkjunum. Greint var frá því í dag í blöðunum að Sádi-Arabía muni fjárfesta að minnsta kosti 600 milljarða dollara í Ameríku en ég mun biðja krónprinsinn, sem er frábær drengur, að jafna það upp í um eina trilljón dala.“
Lægra olíuverð bjargar milljónum mannslífa
„Ég mun líka biðja Sádi-Arabíu og OPEC um að lækka olíuverðið sem verður að lækka, sem ég er satt að segja hissa á, að þeir gerðu það ekki fyrir kosningarnar sem sýndi ekki mikla ást þeirra… Ef verðið lækkar myndi stríð Rússlands og Úkraínu enda um leið. Ef verðið er nógu hátt þá mun stríðið halda áfram. Það verður að lækka olíuverðið til að hægt sé að binda endi á stríðið. Þeir hefðu átt að gera það fyrir löngu, þeir bera mikla ábyrgð í raun og veru og að vissu marki fyrir því sem er að gerast, milljónir mannslífa bjargast með lækkandi olíuverði.“
Landamærunum lokað fyrir ólöglegum innflytjendum
„Í þessari viku gríp ég skjótra aðgerða til að stöðva innrásina á suður landamærum okkar. Fólki var leyft að koma inn eftir stígum sem enginn hefur nokkurn tíma séð áður …Ég lýsti yfir neyðarástandi á landamærunum og stöðvaði strax komu allra ólöglegra innflytjenda og þeir voru margir. Við höfum hafið tafarlausan brottflutning ólöglegra innrásarmanna til baka til þess staðar sem þeir komu frá. … Bandaríkjaher og þjóðvarðliðið er á vettvangi við landamærin til að aðstoða við að hrekja þessa innrás í burtu, þetta er í raun innrás sem við munum ekki þola.“
Málfrelsið endurreist
„Á fyrsta degi skrifaði ég undir forsetaaðgerð til þess að stöðva alla ritskoðun stjórnvalda. Ríkisstjórn okkar mun ekki lengur merkja málflutning okkar eigin borgara sem rangar upplýsingar eða falsupplýsingar sem eru uppáhaldsorð eftirlitsmanna og þeirra sem vilja stöðva frjáls skoðanaskipti og í hreinskilni sagt framfarir. Við höfum bjargað málfrelsinu í Bandaríkjunum …. Ég batt líka enda á vopnaburð löggæslunnar gegn bandarísku þjóðinni og í hreinskilni sagt gegn stjórnmálamönnum og við munum endurreisa hið sanngjarna jafna og hlutlausa réttarríki.“
Aðeins tvö kyn: Karl og kona
„Ég hef gert það að opinberri stefnu Bandaríkjanna að það séu aðeins til tvö kyn: karl og kona. Engum karlmanni verður leyft að taka þátt í íþróttum kvenna.“
5% útgjöld til varnarmála Nató ríkja
„Ég mun líka biðja allar Nató þjóðir að auka varnarútgjöld í 5% af vergri landsframleiðslu eins og hefði átt að gera fyrir löngu síðan. Í byrjun voru gjöldin aðeins 2% og flestar þjóðir borguðu ekki fyrr en ég kom inn í dæmið. Ég krafðist þess að þeir borguðu og þeir gerðu það vegna þess að Bandaríkin voru í raun að borga mismuninn á þeim tíma og það var ósanngjarnt gagnvart Bandaríkjunum. Margt hefur verið ósanngjarnt í mörg ár gagnvart Bandaríkjunum ….“
Líkin lágu út um allt
„Á sunnudaginn hófust tilraunir okkar til að tryggja friðarsamkomulag milli Rússlands og Úkraínu og vonandi fara friðarumræður fljótlega í gang. Það er mjög mikilvægt að það komi fram að þetta er alger drápsvöllur. Milljónir hermanna eru drepnar og enginn hefur séð neitt þessu líkt síðan í seinni heimsstyrjöldinni, líkin liggja út um allt á sléttu túni. Þetta er slétt túnræktarland og það eru milljónir Rússa og milljónir Úkraínumanna sem hafa dáið og særst og enginn hefur séð neitt annað eins síðan í seinni heimsstyrjöldinni. Það er kominn tími til að binda enda á þetta stríð.“
Hlýða má á ræðu Bandaríkjaforseta hér að neðan og einnig umræður í kjölfarið þar sem Trump setti fram harða gagnrýni á ESB sem er að drepa allan lífsþrótt með reglugerðarfargani og röngum stjórnarháttum: