Orkuveitan í Stokkhólmi, Stockcholms exergi, hyggst byggja stóra kolefnisryksuguverksmiðju sem getur fangað og geymt koltvísýring. Fyrirtækið neitar að gefa upp hversu mikið rygsugan muni kosta.
Í kostaðri auglýsingamynd við tóna Michael B. Tretow frá níunda áratugnum markaðssetur Orkuveitan nýja verksmiðju sem mun fanga og binda koltvísýring úr andrúmsloftinu. Gert er ráð fyrir að nýja ryksugan muni fanga 800.000 tonn af koltvísýringi á ári sem jafngildir losun um fjórðungi milljón bíla. Erik Dahlén, verkfræðingurinn sem ber ábyrgð á verkefninu, segir í auglýsingunni:
„Þetta er óviðjafnanleg tækni sem við verkfræðingar notum á snjallan hátt og lögum að núverandi orkukerfi okkar.“
Einn íbúi Stokkhólmsborgar spurði í tölvupósti nánar um nýju ryksuguna og fékk svarið að ekki væri búið að byggja verksmiðjuna enn þá og því miður væri ekki hægt að svara öðrum spurningum. Maðurinn sem kallar sig Anders segir í viðtali við Samnytt að sem skattgreiðandi, vilji hann vita í hvað peningarnir fara en Stokkhólmsborg á helminginn í Orkuveitu Stokkhólms. Anders segir:
„Þeir vilja ekki segja hversu mikið fé þeir hafa lagt í auglýsingar og heldur ekki hvað kostar að byggja ryksuguna eða reka hana.“
Anders heldur að það geti verið mjög háar upphæðir sem að hans mati fari í ekki neitt, því verið sé að þóknast loftslagspáfum og svo kölluðum grænum verkefnum til að sýna umheiminum hversu „loftslagssnjall“ maður er.