Bruggsalar gervigreindarinnar

Óttinn og hræðsluáróðurinn í kringum gervigreind er það sem austurríski heimspekingurinn Carl Popper kallaði scientism—notkun vísindalegs orðfæris til að setja fram óvísindalegar fullyrðingar.

Stjórnendur Anthropic (bandarískt gervigreindarfyrirtæki stofnað árið 2021) og Demókratarnir eru með frelsarakomplex. Þeir telja sig vera „rétta“ fólkið, heimspekingakonunga Platós, sem geta leitt heiminn í farsæld með hjálp gervigreindarinnar, meðan alla aðra skortir siðferði til að geta þetta. Þannig réttlæta þeir áframhaldandi uppbyggingu þess sem þeir sjálfir segja að gæti útrýmt plánetunni á næsta kortéri, í stað þess að einfaldlega segja að gervigreindin sé svo hættuleg að best sé að stöðva allt og skila peningunum aftur til fjárfestanna: „Við getum ekki tekið þátt í því að byggja eitthvað sem gæti eyðilagt plánetuna! Við verðum að hætta þessu!“

En í staðinn segja þeir: „Nei, við ætlum að gera þetta—en við viljum að fá hina ‚góðu‘ ríkisstjórn til að hjálpa okkur—vegna þess að við erum svo GÓÐ. Við höfum æðri siðferðisvitund, við erum svo óeigingjörn… ólíkt vonda fólkinu… Þess vegna verðum við auðvitað að sigra þau, með hjálp góðrar ríkisstjórnar (Demókrata) sem mun setja lög og reglur (mun halda keppinautum okkar frá borðinu með boðum og bönnum og banna almenningi hvernig nota má gervigreindina. Blautur draumur fyrir Demókrata til að banna málfrelsi, sem þeir hata). Og við getum réttlætt það á þeim forsendum að VIÐ erum svo góð!“

Í raun vilja þessir óttasmiðir, þetta hræðsluáróðurslið, útiloka keppinauta. Þetta er kallað bootlegger and Baptist fyrirbærið. Annars vegar eru baptistarnir—siðferðisboðberarnir: „Við erum hér til að vernda ykkur og allt samfélagið gegn fyllibyttunum! Þess vegna þurfum við bannlög”—og hins vegar bruggsalarnir: „Já, endilega setjið þessi lög og gerið okkur kleift að selja áfengi á hærra verði á svörtum markaði með því að banna það! Við munum græða á þessu og styðja ykkar pólitíkusa sem predika um siðferði!“

Höfundur er fjölmiðlafræðingur