Bretar gætu þurft að greiða skyldugjald til BBC fyrir að nota YouTube og Netflix

Þeir sem horfa eingöngu á YouTube eða Netflix komast í dag hjá því að greiða fyrir BBC. Nú íhugar breska ríkisstjórnin að láta afnotagjaldið einnig ná til heimila sem streyma eingöngu kvikmyndum og þáttaröðum og horfa aldrei á eina einustu útsendingu BBC. Áformin hafa þegar fengið viðurnefnið „YouTube-skatturinn“ og nýir útreikningar sýna jafnframt að gjaldið gæti hækkað í yfir 200 pund á ári.

Í Bretlandi þurfa þeir sem horfa á sjónvarp í beinni útsendingu, óháð sjónvarpsstöð, eða nota eigin streymisveitu BBC að greiða sjónvarpsafnotagjald. Þeir sem horfa eingöngu á kvikmyndir og upptökur af þáttum á veitum á borð við Netflix, Disney+ eða YouTube þurfa ekki að greiða. Gjaldið er í ár 180 pund á heimili, sem samsvarar um 30 þúsund íslenskum krónum.

Nú vill ríkisstjórnin loka því sem litið er á sem glufu í kerfinu. Samkvæmt háttsettum heimildarmanni innan stjórnarráðsins er hugmyndin að láta afnotagjaldið ná til allra streymisveitna. Breska dagblaðið The Independent greindi frá þessu þegar áformin voru afhjúpuð um miðjan október. Áætlað er að þá þyrftu þrjár til fjórar milljónir heimila til viðbótar að greiða gjaldið.

– Það er ekki sanngjarnt að fólk geti í raun horft á sjónvarpsefni en komist hjá afnotagjaldinu, sagði heimildarmaðurinn við blaðið.

Viðurnefnið er til komið vegna þess að YouTube er langstærsta myndskeiðaveita landsins, með um 55 milljónir notenda.

Fjármunirnir eiga að nýtast gegn „falsfréttum“

Samkvæmt sama heimildarmanni á að nota viðbótartekjurnar til að bjarga staðbundinni fréttamennsku og vinna gegn samsæriskenningum og falsfréttum. Að sögn heimildarmannsins hefur slíkt efni hjálpað flokkum á borð við Reform UK, flokk Nigels Farage sem er gagnrýninn á innflytjendamál, að vinna kosningar víðs vegar um landið. Menningarmálaráðuneytið leggur þó áherslu á að ekkert hafi verið ákveðið. Ríkisstjórnin skoði nokkra valkosti, meðal annars hvernig megi endurbæta afnotagjaldið, en engar endanlegar ákvarðanir hafi verið teknar, sagði talsmaður þess.

Í grænbók ríkisstjórnarinnar um framtíð BBC, sem var send til umsagnar í desember í fyrra, kemur fram að verið sé að endurskoða hvaða þjónusta eigi að vera afnotagjaldsskyld. Hins vegar er hafnað hugmyndum um að leysa gjaldið af hólmi með almennum skatti eða gjaldi á streymisfyrirtækin sjálf. Búist er við að endanlegar tillögur ríkisstjórnarinnar verði lagðar fram fyrir áramót. Núverandi samningur BBC við ríkið rennur út í lok árs 2027.

Andstaðan vex

Bæði Íhaldsflokkurinn og Reform UK hafa gagnrýnt áformin harðlega og telja að frekar eigi að fjármagna BBC með áskriftum. Kevin Hollinrake, flokksritari Íhaldsflokksins, segir tillöguna með öllu ósanngjarna.

– Heimili sem slökktu á sjónvarpinu og færðu sig yfir á Netflix og YouTube eiga nú að fá reikninginn. Almannaútvarp hefur í kyrrþey orðið að áskrift sem ekki er hægt að segja upp, sagði hann.

Undirskriftasöfnun á vef breska þingsins gegn því að útvíkka gjaldskylduna hefur fengið rúmlega 16.000 undirskriftir. Það þýðir að ríkisstjórninni ber að svara henni. Á sama tíma þrengist sífellt að fjárhag BBC. Samkvæmt útreikningum bresku fjárlagaeftirlitsstofnunarinnar, sem The Independent greindi frá á föstudaginn, gætu 2,7 milljónir til viðbótar hætt að greiða afnotagjaldið fram til ársins 2031. Það myndi knýja gjaldið upp í 202 pund.

Á síðasta ári fækkaði greiddum sjónvarpsleyfum um 539.000 og á fimm árum hefur þeim fækkað um tvær milljónir. BBC segir sjálft að fjármögnunarkerfið sé úrelt og þurfi endurbóta við.


Afnotagjöld RÚV voru afnumin 1. janúar 2009. Í stað þeirra kom sérstakt útvarpsgjald, sem lagt er á með opinberum gjöldum, óháð því hvort viðkomandi á sjónvarp eða nýtir þjónustu RÚV. Sjá tilkynningu Stjórnarráðsins frá 2009. Við álagningu 2026 er útvarpsgjaldið 22.200 krónur á einstakling á ári, sem jafngildir 1.850 krónum á mánuði. Tveir gjaldskyldir einstaklingar á sama heimili greiða því samtals 44.400 krónur á ári. Þetta er lögbundið gjald, ekki valfrjáls áskrift.

RÚV er einokunaraðili á auglýsingamarkaði sem hvergi þekkist annars staðar á Norðurlöndum. Lítill áhugi er hjá stjórnmálastéttinni að breyta því, þrátt fyrir að froðan velli um samstarf við Norðurlönd. RÚV er því PRAVDA Íslands og heldur skoðanamyndum í föstum greipum meðal annars með því að velja á hlutdrægan pólitískan hátt hvaða fréttir eru sagðar og hvaða mál er reynt að þagga í kútinn. Á meðan RÚV hefur þessa alræðisstöðu vegna ríkisstuðnings sem einkaaðilar geta ekki keppt við er varla hægt að segja að málfrelsi ríki á Íslandi.