Eitthvað hefur grænu vindorkustefnunni orðið á í messunni og misskilið textann í laginu Brennið þið vitar, sem heyra má karlakór Reykjavíkur syngja, þar sem vitar sem lýsa leið hverjum landa sem leitar heim og þráir höfn. Reglulega berast fréttir af vindorkuverum sem nútíma vindmyllur kallast, þar sem sjálfsíkveikja hefst í vélarhúsi skrúfublaðanna vegna ofhitnunar og bilunar í tækjabúnaðinum. Logar glatt í glussaolíunni, skrúfan hættir að snúast og blöðin falla logandi til jarðar. Græna ljósið sem átti að lýsa mannkyninu heim í örugga höfn sjálfbærs kolefnisleysis brennur á allt annan hátt en þeir vitar sem karlakór Reykjavíkur syngur um.
Nýjasta dæmið er vindorkuverið i Bjälbo fyrir utan Mjölby í Svíþjóð. Vélarhús vindmyllunnar brann í 50 metra hæð frá jörðu og skrúfublöð vindmyllunnar losnuðu og féllu logandi til jarðar. Tilkynnt var um brunann strax fyrir hádegið á föstudag og slökkviliðið fór þegar á vettvang. Vegna hættu á fallandi hlutum vélabúnaðs grænu vindorkunnar varð slökkviliðið að halda sér í öruggri fjarlægð frá vindmyllunni og lagði áherslu á að slökkva bruna sem dreifðist á jörðu þegar logandi hlutir vindmyllunnar skullu á jörðinni.

Kristin Henrysson býr um 300 metra frá vindmyllunni og hún uppgötvaði brunann, þegar hún var úti að hengja upp þvottinn. Hún fann reyklykt og sá reyk stíga til himins áður en hún fékk að vita að það var vindmyllan sem brann. Þegar hún gekk nær sá hún hvernig hlutar losnuðu frá myllunni og féllu niður á jörðu. „Ég sá stóran eldbolta falla til jarðar” sagði hún í viðtali við sænska sjónvarpið. Hún náði náði sjálf myndskeiði af brunanum sem sjónvarpið birti og sagði það frekar óhugnanlegt að sjá stóru stykkin falla brennandi til jarðar.
Nærliggjandi vegi var lokað á meðan slökkviliðið lét brunann í vélarhúsinu enda sitt skeið.
Kannski mun karlakór Svíþjóðar breyta orðinu vitar í myllur og syngja brennið þið myllur, sem hægt verður þá að syngja á Íslandi þegar myllurnar byrja að loga í samstöðu með öðrum vindmyllum. Kannski er hér ný viðskiptahugmynd fyrir Íslendinga að flytja út ljós eins og í vitum sem vindmyllueigendur geta sett ofan á stólpann sem eftir er, þegar spaðarnir hafa dottið af. Það er að minnsta kosti umhverfisvænni lýsing en logandi eldar í vindmyllum.
Og svo til að bæta gráu ofan á svart vegna ESB-uppákomu ríkisstjórnarinnar, þá mun karlakór Reykjavíkur komast hjá dýrri endurútgáfu plötunnar með Brennið þið vitar, þegar Ísland verður komið í ESB. Togarar við veiðar í íslenskri landhelgi verða hvort er allir útlenskir og með allt aðra heimahöfn en þeir íslensku.
