Gústaf Níelsson er lesendum Þjóðólfs kunnur eftir viðtöl og greinar. Hann er virkur í stjórnmálaumræðunni. Hann hefur skrifað opið bréf til Ingu Sæland eftir að fréttir komu um að Flokkur fólksins uppfyllti ekki lög um stjórnmálaflokka en Inga Sæland tók engu að síður á móti 240 milljónum krónum frá Fjármálaráðuneytinu. „Flokkur fólksins er í reynd einkafirma Ingu Sælands“ segir Gústaf Níelsson í bréfi sínu.
Gústaf Níelsson skrifar bréf til Ingu Sæland:
Komdu sæl Inga.
Þú hefur valdið mér, sem þjóðinni allri trúi ég, nokkrum vonbrigðum. Það er ekki vegna þess að þú eigir ekki erindi í stjórnmálin. Vandinn er frekar sá að það er ekkert að marka þig; segir eitt, en gerir annað. Það er mannlegur breiskleiki að lofa upp í ermina á sér. Ef ég man rétt, lofaðir þú öryrkjum og eldra fólki, sem vafalaust kaus flokk þinn í stórum stíl út á loforðið um 450.000.- á mánuði, skatta- og skerðingarlaust. Þér hefði mátt vera það ljóst að slíku loforði kæmir þú ekki í gegn í stjórnarmyndunarviðræðum, enda eiga meðreiðardömur þínar í ríkisstjórninni enga samleið með efnalitlu alþýðufólki; þær vaða í peningum, sannkallaðar „auðkúlur“,sé þér það ekki ljóst. En þú hafðir ekkert plan B í þessu efni og líður sjálfsagt best við kjötkatla valdsins og kjósendur þínir munu sitja eftir með sárt ennið. Þú ert í reynd sú eina sem kemur fram við þjóðina eins og fífl, svo notuð séu þín eigin orð.
Auk þess er Flokkur fólksins ekki stjórnmálaflokkur, ef eitthvað er að marka fréttir, frekar félagssamtök áhugafólks um stjórnmál og í reynd einkafirma Ingu Sæland, sem notið hefur ríkulegra styrkja frá ríkissjóði á fölskum forsendum og við erum ekki að tala um smáaura, heldur hundruð milljóna af skattfé.
Við gagnrýni bregstu eins og hver önnur götustelpa, hvæsir og sýnir klærnar, þegar búið er að hrekja þig út í horn og kennir auðvaldinu um og falsfréttamiðlum, á sama tíma og þú ert hinn sanni falsari.
Finnst þér ekki komið nóg af loddaraskap þínum?