Brasilísku hjónin Audato og Ieda Denardi hafa verið dæmd í 50 daga fangelsi fyrir að kenna dætrum sínum heima samkvæmt eigin sannfæringu án þess að innleiða kennslu í transhugmyndafræðum. Þau voru sakfelld fyrir svokallaða „vitsmunalega vanrækslu“ eftir að dómstóll komst að þeirri niðurstöðu að heimakennslan hefði ekki falið í sér nám um „kyn og kynfræðslu“ og „umburðarlyndi og fjölbreytileika“.
Dæturnar, sem eru 15 og 11 ára, hafa verið í heimakennslu frá árinu 2020. Þrátt fyrir að þær séu færar píanóleikarar og tali nokkur tungumál taldi dómstóllinn að menntun þeirra væri ófullnægjandi á ákveðnum sviðum sem ríkið teldi mikilvægt. Dómarinn vísaði einnig til þess sem hann taldi skort á menningarlegri þátttöku og nefndi meðal annars að stúlkurnar hefðu hvorki áhuga á trap-tónlist né sertanejo, vinsælli brasilískri tónlistarstefnu.
Hjónin ákváðu að hefja heimakennslu árið 2020 eftir að þau urðu óánægð með opinbera skólakerfið í fjarkennslu á tímum heimsfaraldursins. Þau segja að síðan þá hafi námsárangur dætranna batnað verulega og jafnframt hafi þau getað samræmt kennsluna trú sinni og eigin gildum. Brasilísku hjónin Audato og Ieda Denardi hafa verið dæmd í 50 daga fangelsi fyrir að kenna dætrum sínum heima samkvæmt eigin sannfæringu án þess að innleiða kennslu um kynjafræði. Þau voru sakfelld fyrir svokallaða „vitsmunalega vanrækslu“ eftir að dómstóll komst að þeirri niðurstöðu að heimakennslan hefði ekki falið í sér nám um „kyn og kynfræðslu“ og „umburðarlyndi og fjölbreytileika“.
Dæturnar, sem eru 15 og 11 ára, hafa verið í heimakennslu frá árinu 2020. Þrátt fyrir að þær séu færar píanóleikarar og tali nokkur tungumál taldi dómstóllinn að menntun þeirra væri ófullnægjandi á ákveðnum sviðum sem ríkið teldi mikilvæg. Dómarinn vísaði einnig til þess sem hann taldi skort á menningarlegri þátttöku og nefndi meðal annars að stúlkurnar hefðu hvorki áhuga á trap-tónlist né sertanejo, vinsælli brasilískri tónlistarstefnu.
Hjónin ákváðu að hefja heimakennslu árið 2020 eftir að þau urðu óánægð með opinbera skólakerfið í fjarkennslu á tímum heimsfaraldursins. Þau segja að síðan þá hafi námsárangur dætranna batnað verulega og jafnframt hafi þau getað samræmt kennsluna trú sinni og eigin gildum. Ieda Denardi sagði eftir dómsuppkvaðninguna:
„Sem móðir get ég ekki ímyndað mér einræðislegra ríki en það sem vill senda mig í fangelsi fyrir að nýta rétt minn til að ákveða menntun og uppeldi dætra minna.“
Dómurinn féll þrátt fyrir að saksóknari hefði lagt til sýknu. Eftir að hafa hlýtt á vitni og farið yfir félagslegan og námslegan þroska stúlknanna komst hann að þeirri niðurstöðu að þær hefðu ekki sætt vanrækslu. Julio Pohl, lögfræðingur ADF International í Suður-Ameríku, gagnrýndi niðurstöðuna:
„Saksóknarinn yfirheyrði vitni og lagði til sýknu. Óháður menntasálfræðingur fann engin merki um vanrækslu. Stúlkurnar sjálfar lýstu ströngu og skipulögðu daglegu námi.“
Þrátt fyrir það dæmdi dómarinn fjölskyldunni í óhag. Í dómi sínum sakaði hann foreldrana um að „nota dætur sínar sem peð í hugmyndafræðilegri baráttu“ og taldi að þau hefðu látið þær njóta menntunar sem væri utan eftirlits ríkisins og byggðist ekki á viðurkenndum mælikvörðum brasilíska menntakerfisins.Phol sem fer með mál fjölskyldunnar sagði:
„Foreldri hefur verið dæmt í fangelsi, ekki fyrir að vanrækja menntun barna sinna, heldur fyrir að mennta þau samkvæmt eigin gildum. Þetta er gróf misbeiting refsiréttarins og við munum ekki láta þetta óátalið.“
Framkvæmd refsingar hefur verið frestað á meðan áfrýjun málsins stendur yfir.
Fram til þessa hafa ágreiningsmál um heimakennslu í Brasilíu almennt verið afgreidd sem stjórnsýslumál sem tengjast skráningarskyldu í skóla. Samkvæmt stuðningsmönnum fjölskyldunnar eru Denardi-hjónin fyrstu foreldrarnir í Brasilíu sem hljóta sakfellingu í sakamáli fyrir að veita börnum sínum heimakennslu.
🇧🇷 A Brazilian couple has been sentenced to 50 days in jail for homeschooling their daughters.
— Europa.com (@europa) June 23, 2026
The judge reportedly cited a lack of “gender and sex education”, “tolerance and diversity”, and even the girls’ dislike of trap and sertanejo music as evidence of insufficient cultural… pic.twitter.com/5bY4XG3gx6
