Bráðum verður Ísland Grænland

Hirðin í Brussel er yfir sig móðguð og sendir stuðningsyfirlýsingar til Danmerkur vegna fullveldis Grænlands. Bandaríkjaforsetinn, Donald Trump, er alltaf að ræða um Grænland á fundum þegar yfirmenn hermála hittast. Hvers vegna skyldi Donald Trump vera svona annt um Grænland að hann segir við kollega sína að hann útiloki hreint ekki neitt í þeim málum sem snerta öryggi Bandaríkjanna, Grænlands og Íslands?

Málið er í sjálfu sér einfalt. Fyrir nú utan að „samherjarnir” í Nató hafa hver á fætur öðrum neitað að veita Bandaríkjunum hefðbundna, sjálfsagða og eðlilega aðstoð í stríðinu gegn stærstu morðbrjálæðingum heims, klerkastjórninni í Íran sem vilja koma sér upp kjarnorkuvopnum og hafa drepið á sjötta tug þúsunda saklausra og vopnlausra borgara á götum úti, þá ræða „samherjarnir” um Donald Trump sem prúðudúkku í höndum Pútíns af því að hann ræðir beint við manninn sem enginn gerir í ESB.

Donald Trump hefur eytt miklum kröftum í það að reyna að koma á friði í Úkraínustríðinu en mætir þar meintum vegg óvina, sem alls ekki vilja sjá neinn frið heldur vilja halda slátrun hermanna áfram og undirbúa þriðju heimsstyrjöldina á fullu og ætla sér í stríð við Rússland. Það stríð verður hrikalegasti hildarleikur sem mannkyn mun upplifa ef af verður. Hafa verið gerð mörg líkön um það, hvaða afleiðingar það hefði í manndrápstölum sem skipta milljörðum og í geislavirkri, sviðinni jörð í Evrópu sem tæki marga tugi alda að jafna sig. Þessu vifta stríðsóðir brjálæðingar í ESB á bug sem smáatriði í umræðunni um framtíð Evrópu við hliðina á Rússlandi. Búið er að æsa til þvílíks Rússahaturs í álfunni að hatur Hitlers á gyðingum lítur út eins og félagsleg velferðarstefna í staðinn.

Sænskir ráðherrar froðufella í bræði yfir Rússum og leggja til að vegabréf verði tekin af öllum Rússum hvar sem er innan ESB. Refsa á öllum Rússum bara fyrir að vera Rússar. Rússar í Svíþjóð geta ekki heimsótt ættingja í Rússlandi né ættingjarnir þar heimsótt Rússa í Svíþjóð eða öðrum löndum ESB nema eftir rándýrum krókaleiðum gegnum lönd eins og Tyrkland. Sem betur fer hefur Alþjóða Ólympíunefndin leyft Rússum að koma aftur til baka fyrir næstu Ólympíuleika í Los Angeles 2028. Tilviljun? Eða kannski hefur „Rússadyndillinn” Donald Trump komið vitinu fyrir forystumenn íþróttamála heimsins að hætta að brjóta regluna sem þeir þykjast fylgja: íþróttir og pólitík eiga ekki samleið.

ESB-klíkan er orðin eins og myrkasta klíka þriðja ríkisins sem heldur öllu í greipum sér og miðað við hatrið og undirbúning Barbarossa 2.0 má alveg láta sér detta það í hug að ESB hafi verið stofnað svo nazistar gætu komið til baka til að hefna ófara sinna í seinni heimsstyrjöldinni. Stjórnmálamenn í Evrópu láta það viðgangast að samningurinn sem Þjóðverjar skrifuðu undir í lok seinni heimsstyrjaldarinnar er núna farinn út í veður og vind og enn á ný lýsir kanslarinn því yfir að Þýskaland verði stærsta herveldi álfunnar. Þjóðverjar og Frakkar ráða öllu í ESB og það er glæpur að reyna að klína Íslandi við hernaðaráform þessarra ríkja á næstunni við litla herlausa Ísland eins og ríkisstjórn Íslands gerir með öllum ráðum.

Donald Trump og Bandaríkjastjórn berjast við óvininn að innan eins og varaforseti Bandaríkjanna sagði svo skýrt á öryggisráðstefnunni í Munchen í febrúar 2025. Þar varaði hann við þeirri sömu þróun og Bandaríkjamenn sjálfir hafa fengið í fangið og ríkisstjórn þeirra glímir við að uppræta í Bandaríkjunum. Sannleikurinn er sá að óvinurinn hefur hreiðrað um sig í alþjóðastofnunum og í ríkisstjórnum spilltra embættismanna út um allan hinn vestræna heim. Það sem knýr þetta brjálæði er meðal annars óseðjandi gróðahungur vopnaframleiðenda og óseðjandi sjálfselska, hégómi og eigingirni aðallega vinstri stjórnmálamanna sem láta kaupa sig fyrir túkall.

Þar erum við í dag með keypta ríkisstjórn á Íslandi, þar sem forsætisráðherrann fær mestan kikk úr því að vera ljósmyndafyrirsæta á skipulögðum myndatökum þeirra „stóru.” Ísland er henni einskis virði nema að vera stökkbretti fyrir eigin frama og hégómagirni. Enda situr hún núna á skólabekk fasistanna í Davos sem ungur alþjóða leiðtogi eftir brautryðjandann Katrínu Jakobsdóttur.

Grænland, Grænland, Grænland er viðspyrna Bandaríkjamanna gegn því liði sem vill hefja þriðju heimsstyrjöldina og segir í sífellu: Rússland, Rússland, Rússland.

Spurning dagsins er: Ætla Íslendingar að leyfa þessari ríkisstjórn að eyðileggja vináttuböndin við Bandaríkin góðu og gera Ísland að nýlendu ESB eða bretta upp ermarnar, krefjast nýrra alþingiskosninga og senda Viðreisn, Samfylkinguna og Flokk fólksins þangað sem þau eiga heima – í ruslafötu sögunnar?