Bráðum verður íslam stærst í heiminum

Samkvæmt nýjum gögnum frá Pew rannsóknarmiðstöðinni, þá stækkaði íslam um þrisvar sinnum hraðar en kristni á árunum 2010 – 2020. Meðal annars er bent á hærri fæðingartíðni sem helstu skýringu ásamt því að færri láta af íslamskri trú en kristni.

Múslimskum íbúum heims fjölgaði næstum 21% á síðasta áratug. Kristni stækkaði mun hægar – um sex prósent á sama tímabili. Íslam stækkaði því tvöfalt hraðar en íbúafjöldi heims í heildina tekið sem fjölgaði um 10%.

Samkvæmt rannsókninni fékk íslam einnig fleiri nýja fylgjendur en öll önnur ekki múslímsk trúarbrögð samanlagt á tímabilinu.

Meðal ástæðna sem nefnd er fyrir þessari þróun er s hærri frjósemi múslimskra kvenna og lægri meðalaldur múslimskra íbúa. Á árunum 2015 til 2020 átti múslimsk kona að meðaltali 2,9 börn, samanborið við 2,2 börn hjá konum sem ekki tilheyrðu íslam.

Heildarátölur þess að fólk sem gekk til liðs við eða yfirgaf íslam voru litlar og námu um einu prósenti á árunum 2010-2019.

Stækka mjög hratt

Kristni eru enn stærstu trúarbrögð heims með 2,3 milljarða fylgjenda árið 2020. Íslam er næststærst með 2 milljarða. En þó að fjöldi kristinna manna hafi aukist, þá minnkaði hlutur trúarinnar hjá íbúum heims um næstum tvö prósent á tímabilinu.

Samkvæmt rannsókninni hefur vöxtur kristninnar hægt á sér vegna mikils fjölda fólks sem yfirgefur kristni og er skráð án trúarbragða. Af hverjum hundrað fullorðinna sem ólust upp í kristni, þá hættu að meðaltali 11,6 manns.

Conrad Hackett, yfirrannsakandi hjá Pew Research Center og einn af höfundum skýrslunnar, segir samkvæmt The Washington Post að

„Íslam er á góðri leið með að verða stærstu trúarbrögð heims í náinni framtíð nema þróunin breytist.“

Hann lýsir þróuninni sem „hrikalegri“ og bendir á að múslimar og kristnir séu mun nær hvor öðrum að tölu vegna þess að íslam vex hraðar en nokkur önnur stór trúarbrögð.

Könnunin byggir á þúsundum viðmælendum og könnunum í 201 landi og tekur til sjö hópa: kristinna, múslima, hindúa, búddista, gyðinga, annarra trúarbragða og fólks án sérstakrar trúarlegrar tengingar.

Fara efst á síðu