Í Svíþjóð hótar Nató og sænska ríkisstjórnin því, að ef Svíar borgi ekki 5% af þjóðarframleiðslu sinni til varnarmála, þá munu sænsk börn neyðast til að læra að lesa, tala og skrifa rússnesku!
Sjálfsagt er ekki þessi hótun einungis bundin við Svíþjóð heldur á við öll Nató-ríkin, líka Ísland.
3,5% í hergjöld og 1,5% í fjárfestingar í tengslum við varnarmál eins og iðnað og samgöngur. Í dag greiðir ekkert Nató-ríki svo mikla peninga í eigin varnarmál. Pólland er það land sem er næst markmiðinu með 4,1% af þjóðarframleiðslunni samkvæmt eigin tölum hernaðarbandalagsins. Er það meira ein tvöföld aukning miðað við tölur fyrir tíu árum síðan. Bandaríkin eyða einnig miklu í hermálin en fjárframlögin hafa reyndar aðeins minnkað og voru 3,4% í fyrra.
Nató veitir enga undanþágu
Þegar sænska sjónvarpið tekur viðtal við aðalritara Nató, Mark Rutte, um nýja 5% markmiðið og fréttamaðurinn bendir á að það sé álíka upphæð og það kostar að reka alla grunnskóla í Svíþjóð, þá segir Rutte að Svíar eigi engan annan valkost:
„Ef þið borgið þetta ekki, þá er mitt ráð að þið dreifið kennslubókum á rússnesku í grunnskólum ykkar. Því þið munuð þurfa að læra málið mjög fljótt.“

Rutte sagði einnig að ekki sé til umræðu að velja neinar aðrar tölur: „Nató veitir enga undanþágu.“