Blindaðir forsetar: Annar segir atkvæðagreiðsluna „ekki sýna hvernig þjóðfélag við viljum vera“ og hinn segir þjóðina ekki vilja aðildarviðræður „að svo komnu máli“

Forseti Íslands og forseti Alþingis við setningarathöfn Alþingis í dag (skjáskot Rúv).

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, talaði niður til alþingismanna í innsetningarræðu sinni í dag og minnti þá á að þeir ættu að setja góðan tón í samfélagsumræðunni. Svona rétt eins og núverandi alþingismenn séu ófærir um að gera það sjálfir. Gerir forsetinn sér yfirleitt grein fyrir því, að þingmenn eru kjörnir fulltrúar þjóðarinnar á þingi? Vill hún aðgreina sjálfa sig frá þeim tengslum? Hvað á maður að halda þegar hún tilkynnir að eitt af mikilvægustu verkefnum forsetaembættisins sé að „skapa rými þar sem fólk getur komið saman og hlustað hvert á annað“ og að ungt fólk muni leiða „samtal þjóðarinnar“ í október. Alþingi er sá vettvangur sem þjóðin hefur stjórnarfarslega til að koma saman og hlusta hvert á annað. Forseti Íslands er ekki yfir þingræðið hafinn, forsetinn er ekki einvaldur og verður fremstur allra að virða stjórnarskrá Íslands sem fyrirskipar lýðveldi með þingbundinni stjórn.

Það var einnig dapurlegt að heyra skilaboð forseta Íslands um niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar. Ekki það að hana bæri ekki að virða, heldur hitt að

„hún svarar ekki spurningunni um hvernig samfélag við viljum vera þegar niðurstaðan liggur fyrir. “

Niðurstaðan var sú að við Íslendingur viljum vera sjálfstæð þjóð sem ræður örlögum sínum sjálf. Við viljum ekki lúta erlendri stjórn, við viljum ekki afsala löggjafarvaldi, dómsvaldi og framkvæmdavaldi til ókjörinna embættismanna ESB í Brussel. Er þessi niðurstaða nokkuð óskýr frú forseti?

Með yfirdrifinni góðsemi má segja að forsetinn tali í móðurlegum tóni til barnanna. En með lágmarkskröfum til venjulegs fólks, þá er það náttúrulega algjört sjálfsmark forsetans að sleppa innihaldinu í ESB-kosningabaráttunni og neita að virða niðurstöðu hennar sem staðfestingu á að meirihluti Íslendinga vilja vera sjálfstætt fólki í sjálfstæðu landi. Það er samfélagið sem atkvæðagreiðslan sagði til um að við viljum verða, þegar niðurstaðan lá fyrir. Væri ekki rétt að þjóðin velji sér annan og áhugasamari forseta um örlög þjóðarinnar í næstu forsetakosningum?

Og þá var það forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir, sem reynir að gera hótanir gegn ráðherrum að kvenréttindaspurningu. Að konum í ráðherrastólum er hótað hefur ekkert með kyn þeirra að gera, en allt með að gera að þær eru ráðherrar. Karlkyns ráðherrum er líka hótað eins og dæmin sanna til dæmis með Davíð Oddsson í Icesave baráttunni og Geir Haarde. Málið er að auknar hótanir snúast gegn ráðamönnum og bendir til harðnandi samfélagsástands og setur auknar kröfur um öryggi ráðherra og opinberra hátt settra embættismanna. Þetta er því miður neikvæð þróun sem sést í mörgum vestrænum ríkjum. Staðreyndin er einfaldlega sú, að þegar konur gegna slíkum störfum, þá verða þær fyrir barðinu á sama hátt og karlmenn.

En að forseti Alþingis er samansvarinn ESB-sinni fer ekki fram hjá neinum. Hún túlkar niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem tímabundna. Hún sagði orðrétt:

„….og einnig niðurstaðan, sem varð, að endurvekja ekki umsóknina að svo komnu máli.“

Þá vitum við það að núverandi meirihluti með forseta Alþingis í fararbroddi tekur ekkert mark á niðurstöðunni, því þvert á vilja þjóðarinnar á ekki að draga umsóknina til baka og bíða fyrsta besta tækifæris síðar til að kvelja þjóðina með nýrri atlögu og mögulega nýjum brellum.

Hin dvínandi sól Evrópusambandsins er greinilega enn með svo sterka geisla, að forsetarnir báðir eru blindaðir og yfirsést niðurstaða ESB-kosninganna. Núna eiga landsmenn greinilega að vera uppteknir við það göfuga verkefni að hugga já-liðið sem tapaði á meðan forystumenn þeirra nota tímann til að brugga ný leyniráð með von der Leyen um hvernig hægt verði að plata þjóðina í snöru ESB í framhaldinu.

Fyrir duglegt landsölufólk er nei ekkert svar sem hægt er að taka mark á.