Belgía tekur upp landamæraeftirlit – Schengen hugmyndin er dauð

Sú hörmung sem stafar af óheftum fjöldaflutningum hefur sett allar Evrópuþjóðir í uppnám, þar á meðal nokkrar af þeim frjálslyndustu eins og Belgíu. Belgísk yfirvöld hafa fengið nóg af ólöglegum innflytjendum og Belgía mun taka upp landamæraeftirlit í sumar. Schengen virkar ekki þar frekar en á Íslandi eða neins staðar annars staðar.

Allt frá því að Belgía varð sjálfstætt ríki ár 1830 hefur frjálslyndið gegnt sögulegu hlutverki í Belgíu. Þetta er land sem hefur lengi lögleitt hjónabönd samkynhneigðra, afglæpavætt vændi, fóstureyðingar og líknardráp – allan pakkann.

En núna þarf jafnvel þetta ofurfrjálslynda ríki að takast á við innrás eftirlitslausra, ólöglegra innflytjenda frá löndum þriðja heims.

Talsmaður belgíska innanríkisráðuneytisins tísti eftirfarandi:

„Tími kominn að hefja eftirlit með innflytjendum. Belgía má ekki vera segull fyrir þá sem eru stöðvaðir annars staðar. Skilaboð okkar eru skýr: Belgía mun ekki lengur þola ólöglega innflytjendur og verslun með hælisleitendur.“

Reuters greindi frá:

„Ríkisstjórnin greindi frá því að Belgía mun innleiða landamæraeftirlit með fólki sem kemur inn í landið til að stemma stigu við ólöglegum innflytjendum. Er um að ræða enn eina takmörkun á frjálsri för um Schengen-svæðið í Evrópu.

Takmarkanirnar í landinu sem á landamæri að Hollandi, Frakklandi, Lúxemborg og Þýskalandi munu taka gildi í sumar, sagði Anneleen Van Bossuyt, talsmaður aðstoðarráðherra innflytjendamála, á föstudag.“

Belgía endurspeglar aðgerðir Hollands og Þýskalands, sem hluta af samræmdum aðgerðum gegn ólöglegum innflytjendum um alla álfuna. Í yfirlýsingu frá belgísku ríkisstjórninni seint á fimmtudag segir:

„Eftirlitið verður framkvæmt með markvissum hætti á helstu aðkomuleiðum eins og bílastæðum við hraðbrautir, í strætisvögnum … í ákveðnum lestum … og á flugi innan Schengen-svæðisins frá löndum þar sem mikill þrýstingur er á fólki, eins og Grikklandi og Ítalíu.“

Bart De Wever, forsætisráðherra, sem hefur gegnt embætti síðan í febrúar, hefur sett það sem forgangsverkefni fyrir ríkisstjórn sína að draga úr innflytjendastreyminu.

„Belgía, eitt ríkasta land heims, fékk 39.615 hælisumsóknir árið 2024, 11,6% fleiri en árið 2023, samkvæmt tölum frá Sambandsstofu fyrir móttöku hælisleitenda.“

Fara efst á síðu