Baudenbacher telur Ísland betur sett en Sviss gagnvart ESB

Ísland nýtur stofnanalegs jafnvægis í samstarfi sínu við Evrópusambandið sem skortir í nýjum samningum Sviss við sambandið. Þetta er mat Carls Baudenbachers, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, í grein sem birtist á Vísi 2. október. Hann nefnir Icesave-dóminn sem dæmi um mikilvægi sjálfstæðra stofnana EFTA og hvetur til þess að þær verði styrktar.

Baudenbacher fjallar í greininni um gagnrýni svissneska þingmannsins Beats Rieders á samningapakka Sviss og Evrópusambandsins. Kjarni hennar sé að Sviss skuldbindi sig til að taka upp framtíðarlöggjöf ESB án þess að vita fyrirfram hvert efni hennar verði eða eiga jafna aðild að setningu hennar.

Að mati Baudenbachers snýst slíkt fyrirkomulag um mun meira en tæknilega samræmingu reglna. Það veki grundvallarspurningar um lýðræðislegt umboð, fullveldi og sjálfsákvörðunarrétt ríkja.

Skyldur án samsvarandi áhrifa

Samkvæmt frásögn Baudenbachers telur Rieder að skuldbinding um sífellda upptöku nýrra ESB-reglna færi löggjafarvald til Brussel og veiki bæði beint lýðræði og sambandsfyrirkomulag Sviss. Höfnun nýrra reglna gæti jafnframt leitt til mótvægisaðgerða af hálfu ESB.

Baudenbacher tengir þessa gagnrýni við umræðuna sem lauk með höfnun Svisslendinga á EES-aðild árið 1992. Þá hafi áhyggjurnar einnig snúist um að landið þyrfti að taka upp vaxandi regluverk án þess að hafa jafnan rétt til að móta það.

Hann bendir á að EFTA-ríkin geti komið að undirbúningi löggjafar sem varðar EES, en hafi ekki atkvæðisrétt í löggjafarstofnunum ESB. Þátttaka á undirbúningsstigi jafngildi því ekki aðild að sjálfri ákvarðanatökunni.

Sjálfstæðar stofnanir geri gæfumuninn

Meginmunurinn á stöðu Íslands og því fyrirkomulagi sem Sviss standi frammi fyrir liggi þó í stofnunum EFTA-stoðar EES, að mati Baudenbachers.

Eftirlitsstofnun EFTA og EFTA-dómstóllinn gegni þar sjálfstæðu hlutverki gagnvart ESB. Ísland, Noregur og Liechtenstein hafi þannig eigin eftirlits- og dómstólakerfi innan EES-samstarfsins og komi að skipan þess og þróun.

Baudenbacher telur að eftirlit og dómsúrlausnir samkvæmt svissneska samningapakkanum fælu hins vegar í sér frekara framsal fullveldis til ESB. Hann dregur því í efa það mat svissnesku ríkisstjórnarinnar að sú leið sé betri en EES-fyrirkomulagið.

Vísar til Icesave-dómsins

Baudenbacher nefnir Icesave-málið sérstaklega til marks um mikilvægi sjálfstæðs EFTA-dómstóls.

Hann rifjar upp að Eftirlitsstofnun EFTA hafi höfðað mál gegn Íslandi vegna þess að lágmarksbætur voru ekki greiddar breskum og hollenskum innstæðueigendum eftir bankahrunið. Framkvæmdastjórn ESB hafi stutt málatilbúnaðinn, en EFTA-dómstóllinn hafnað honum 28. janúar 2013.

Í umfjöllun hans kemur fram að tilskipunin um innstæðutryggingar hafi ekki lagt þá skyldu á íslenska ríkið að tryggja greiðslurnar við kerfishrun af þessu tagi.

Dómurinn sýni að mati Baudenbachers að EFTA-dómstóllinn túlki EES-rétt sjálfstætt og geti komist að annarri niðurstöðu en bæði Eftirlitsstofnun EFTA og framkvæmdastjórn ESB.

Vill efla áhrif Íslands og víkka samstarfið

Baudenbacher vísar einnig til umræðu í Bretlandi um fyrirhugaða aðlögun að regluverki ESB. Hann hefur eftir lagaprófessornum David Collins að slíkt fyrirkomulag geti bundið ríki við ákvarðanir annars samningsaðila til frambúðar. Að mati Baudenbachers undirstrikar sú umræða sömu spurningu: hvort skyldunni til að fylgja erlendum reglum fylgi sambærilegur réttur til áhrifa og eftirlits.

Í lok greinarinnar setur hann fram þrjár tillögur fyrir Ísland. Styrkja eigi Eftirlitsstofnun EFTA og EFTA-dómstólinn sem varðmenn EFTA-stoðarinnar, bæta möguleika Íslands til að hafa áhrif fyrr í undirbúningi EES-tengdrar löggjafar og kanna hvernig Sviss og Bretland gætu komið að víðtækara evrópsku samstarfi.

Boðskapur hans er að sjálfstæðar stofnanir EFTA séu lykilþáttur í stöðu Íslands gagnvart ESB. Þær þurfi að efla samhliða því að Ísland leiti aukinna áhrifa á þær reglur sem það tekur upp.

22:33