Dr. Carl Baudenbacher og Ólafur Ragnar Grímsson.
Takk Áfram Ísland fyrir frábæran fund
Dr. Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins og einn þekktasti sérfræðingur Evrópu í EES-rétti, telur hagsmunum Íslands betur borgið utan Evrópusambandsins. Hann varaði sérstaklega við því á fjölmennum fundi í Reykjavík að Íslendingar litu á þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst sem einfalda leið til að „sjá hvað er í boði“.
Húsfyllir var í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll síðdegis á mánudag þegar Baudenbacher flutti erindi um stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu og það val sem þjóðin stendur frammi fyrir í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Baudenbacher var forseti EFTA-dómstólsins á árunum 2003–2018 og sat við dómstólinn frá stofnun hans. Íslendingum er hann ekki síst kunnur vegna Icesave-málsins, en hann var forseti EFTA-dómstólsins þegar dómur féll Íslandi í vil árið 2013.
Ekki bara verið að „sjá hvað er í boði“
Eitt helsta varnaðarorð Baudenbachers á fundinum laut að þeirri hugmynd að Íslendingar geti sagt já 29. ágúst, kannað hvað ESB bjóði og síðan einfaldlega ákveðið hvort þeim líki niðurstaðan. Baudenbacher varaði við að litið væri á atkvæðagreiðsluna sem „meinlausa könnun“ á því hvað Evrópusambandið hefði upp á að bjóða.
Málið sé mun stærra en það.
Aðildarviðræður við Evrópusambandið hafa ákveðið markmið: að undirbúa umsóknarríki undir aðild að sambandinu. Þær eru því ekki hefðbundnar viðskiptasamningaviðræður þar sem tveir jafnstæðir aðilar setjast niður og semja frá grunni um sameiginlegar reglur. Umsóknarríkið þarf þvert á móti að laga sig að regluverki Evrópusambandsins. Þess vegna skiptir fyrsta skrefið máli.
Ísland hefur þegar aðgang að innri markaðnum
Kjarni málflutnings Baudenbachers er að staða Íslands sé óvenjulega sterk vegna EES-samningsins og EFTA-aðildarinnar. Ísland hefur þegar aðgang að innri markaði Evrópusambandsins en stendur jafnframt utan sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu ESB, sameiginlegrar landbúnaðarstefnu þess, tollabandalagsins og sameiginlegrar viðskiptastefnu. Baudenbacher hefur lýst þessari stöðu svo:
„Ísland er nú þegar nátengt Evrópu í gegnum EES en raunverulegur styrkur þess liggur í EFTA-stoðinni.“
Þar nefnir hann sérstaklega stofnanalegt sjálfstæði EFTA-ríkjanna, sem að hans mati kom skýrt í ljós í Icesave-málinu.
Icesave sýndi hvað sjálfstæð EFTA-stoð getur þýtt
Icesave-málið er þungamiðja í mati Baudenbachers á stöðu Íslands. EFTA-dómstóllinn hafnaði árið 2013 kröfum Eftirlitsstofnunar EFTA á hendur Íslandi vegna Icesave-reikninganna. Baudenbacher var forseti dómstólsins þegar málið var dæmt.
Málið sýnir að hans mati mikilvægi tveggja stoða kerfis EES-samningsins. EFTA-ríkin þrjú innan EES – Ísland, Noregur og Liechtenstein – lúta ekki einfaldlega stofnunum ESB heldur hafa sína eigin eftirlitsstofnun og sinn eigin dómstól.
Með fullri ESB-aðild myndi Ísland hins vegar ganga inn í stofnanakerfi Evrópusambandsins.
Varar við Evrópudómstólnum
Baudenbacher beindi jafnframt harðri gagnrýni að Dómstóli Evrópusambandsins. Hann sagði stóran hluta dómara við Evrópudómstólinn koma úr pólitísku umhverfi fremur en lagalegu. Þetta er sérstaklega mikilvægt þegar rætt er um mögulegar íslenskar undanþágur í aðildarsamningi.
Baudenbacher hefur bent á að jafnvel þótt Ísland fengi sérstakar lausnir við inngöngu væri ekki nóg að skoða aðeins texta aðildarsamningsins. Ending slíkra lausna myndi einnig ráðast af framfylgd framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, síðari löggjöf sambandsins og túlkun Evrópudómstólsins. Í því felst grundvallarmunur á EES/EFTA-leiðinni og fullri aðild að ESB.
„Sæti við borðið“ tryggir ekki afgerandi áhrif
Ein algengustu rökin fyrir fullri ESB-aðild eru að Ísland fengi þá „sæti við borðið“. Baudenbacher hafnar ekki að Ísland fengi formlegan meðákvörðunarrétt með aðild. Hann bendir hins vegar á að það sé ekki það sama og að hafa afgerandi áhrif. Hann hefur orðað þetta skýrt:
„Aðild að ESB myndi veita formlega meðákvörðunarrétt, en fyrir ríki af stærð Íslands myndi hún ekki tryggja afgerandi áhrif.“
Ísland fengi sæti, atkvæði og þátttöku í stofnunum sambandsins. Á móti kæmi framsal ákvörðunarvalds á sviðum sem Ísland ræður nú sjálft yfir.
Fiskveiðar eru hluti af kjarna íslensks sjálfstæðis
Þar kemur sjávarútvegurinn sérstaklega við sögu. Baudenbacher hefur lagt áherslu á að þau svið sem Ísland ræður sjálft yfir utan Evrópusambandsins séu ekki einhver jaðarmál. Hann nefnir sérstaklega:
sjávarútveg, landbúnað, utanríkisviðskipti, gjaldmiðilsmál og orkusjálfstæði.
„Þetta eru kjarnaþættir íslenskrar ríkisheildar,“ hefur Baudenbacher sagt.
Fyrir Ísland er þetta grundvallaratriði. EES-samningurinn veitir aðgang að innri markaðnum án þess að sameiginleg sjávarútvegsstefna ESB nái almennt yfir íslenskar fiskveiðar. Full ESB-aðild myndi breyta þeirri stöðu.
Sérlausnir eru ekki endilega eilífar
Stuðningsmenn aðildarviðræðna hafa lagt áherslu á að Ísland geti samið um sérstakar eða „skapandi“ lausnir vegna sérstöðu landsins. Baudenbacher útilokar ekki að slíkar lausnir séu mögulegar. En hann varar við því að ganga út frá því að sérlausn sem fengist í aðildarsamningi yrði óbreytanleg um alla framtíð.
„Hugsanlega væri hægt að semja um sérstakar aðildarlausnir,“ hefur hann bent á.
Síðan kemur fyrirvarinn: Ending þeirra myndi ráðast af framkvæmd framkvæmdastjórnarinnar, síðari löggjöf ESB og túlkun Dómstóls Evrópusambandsins. Þetta er ein mikilvægasta ábending Baudenbachers inn í íslensku ESB-umræðuna.
Spurningin er því ekki aðeins hvaða undanþágur Ísland gæti fengið við inngöngu, heldur einnig hver hefði vald til að túlka og þróa reglurnar eftir að Ísland væri orðið aðildarríki.
Ólafur Ragnar: Valdakerfi ESB er kjarni málsins
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, tók þátt í fundinum og beindi athyglinni einmitt að þessu atriði. Hann sagði réttar- og valdakerfi Evrópusambandsins hafa að mestu gleymst í íslensku umræðunni um mögulega aðild. Þar er komið að spurningu sem nær langt út fyrir einstaka málaflokka á borð við sjávarútveg, landbúnað eða gjaldmiðil:
Hver hefur síðasta orðið?
Með ESB-aðild yrði Ísland þátttakandi í sameiginlegu pólitísku og lagalegu kerfi sambandsins. Á fjölmörgum sviðum væri löggjöf ekki lengur eingöngu ákvörðuð af Alþingi heldur innan stofnanakerfis Evrópusambandsins.
Fundurinn sem Háskóli Íslands hætti við að hýsa
Fundurinn hafði þegar vakið mikla athygli áður en hann hófst. Upphaflega stóð til að halda fyrirlestur Baudenbachers í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Háskólinn afturkallaði afnot af salnum eftir deilur um hver stæði að fundinum. Rektor HÍ sagði að ekki hefði verið upplýst við bókun að Áfram Ísland, sem berst gegn ESB-aðild, kæmi að viðburðinum.
Ragnar Árnason, prófessor emeritus, sem hafði bókað salinn, mótmælti þeirri lýsingu og sagði um fræðilegan fyrirlestur að ræða. Fundurinn var í kjölfarið færður í Sjálfstæðissalinn við Austurvöll. Það virðist ekki hafa dregið úr áhuga almennings, því húsfyllir var í salnum.
Baudenbacher: Hagsmunum Íslands betur borgið utan ESB
Þegar málflutningur Baudenbachers er dreginn saman stendur eftir tiltölulega einföld niðurstaða. Hann telur Ísland nú þegar njóta stórs hluta þess efnahagslega ávinnings sem felst í evrópsku samstarfi með aðildinni að EES. En Ísland varðveitir jafnframt sjálfstæði á nokkrum sviðum sem hafa óvenjulega mikla þýðingu fyrir landið.
Með ESB-aðild fengi Ísland aukinn formlegan þátttökurétt innan stofnana sambandsins en þyrfti á móti að færa meira ákvörðunarvald til sameiginlegra stofnana ESB. Baudenbacher telur þau skipti ekki hagstæð fyrir Ísland. Það var meginskilaboð eins reyndasta sérfræðings Evrópu í EES-rétti til Íslendinga tæpum þremur vikum áður en þeir ganga að kjörborðinu.
Hér að neðan má horfa á fundinn:
