Kristrún Frostadóttir lýsti því yfir á blaðamannafundi í gær að hún sem forsætisráðherra hefði ekkert að gera með „einkamál“ annarra ráðherra. Það væri ekki í hennar verkahring. Þetta segir hún á löngum blaðamannafundi formanna ríkisstjórnarflokkanna um einkamál barnamálaráðherrans sem leiddi til afsagnar ráðherrans. Ef nú einkamálið er ekki í verkahring ríkisstjórnarinnar, af hverju þurftu ríkisstjórnarflokkarnir þá að halda þennan blaðamannafund? Var verið að hvítþvo forsætisráðherrann af trúnaðarbresti sem lét barnamálaráðherrann fá upplýsingar um hver skrifaði bréfið, svo hún gæti áreitt viðkomandi með óboðaðri heimsókn?
Málið er allt ömurlegt. Ríkisstjórnin vissi um málið og þagði. Fyrst þegar fjölmiðlar taka það upp er brugðist við. Inga Sæland og ríkisstjórnin verja frásögn menntamálaráðherrans sem misnotaði aðstöðu sína gagnvart 15 ára dreng og eignaðist barn með honum. Trúir því einhver, að valkyrjurnar hafi ekki vitað um þessa sögu Ásthildur Lóu Þórsdóttur fyrir löngu síðan? Stjórnmálin eru botnlaust siðlaus þegar samkomulag um að fela sannleikann ræður ferðinni. Er það allt í sama dúr og aðrar lygar ríkisstjórnarinnar til dæmis um að troða Íslandi inn í ESB gegn vilja þjóðarinnar sem þegar er búið að ákveða með stækkunarstjóranum í Brussel.
Ásthildur Lóa hefði aldrei átt að komast inn á þing. Hún segist ekki hafa brotið neitt af sér, barnaníðingar eru góðir við börn. Í viðtali við RÚV lýsti hún sér sem fórnarlambinu sem varð fyrir kynferðisofsóknum sem hún réð ekkert við. Miðað við þá lýsingu má spyrja: Kærði hún ekki barnið fyrir að nauðga sér?
Kyferðisumgengi Ásthildar Lóu við barn sést skýrt ef karlmaður er settur í hennar stað sem segði sömu orðin. FemínistaÍsland hefði örugglega verið fljótt til að dæma þann mann barnaníðing og sjá til að viðkomandi sætti tilskyldri refsingu. Á að draga úr gruni um barnaníð af því að það er kona sem fremur glæpinn en ekki karlmaður?
Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir velja allar að verja glæp Ásthildar Lóu í stað þess að ræða siðferðið í máli hennar og spurningu blaðamanna um lágmarkskröfur til að geta orðið alþingismaður, hvað þá ráðherra í ríkisstjórn Íslendinga.
Valkyrjurnar hafa sýnt og sannað að þær kunna ekki að meðhöndla stöðu í ríkisstjórn landsmanna. Svona fólk þurfa Íslendingar að hreinsa burtu af Alþingi.