Donald Trump Bandaríkjaforseti er mikill þyrnir í augum alþjóðasinna sem vilja sölsa undir sig fullvalda þjóðfélög Vesturlanda. Allt er reynt, dómsmál, lygapressan… til og með aftökutilræði. En ekkert bítur á Donald Trump. Núna selja listamenn sig til að búa til skítastyttur til að hæðast að forsetanum. Nýjast er að ESB-þingið heimilaði sýningu háðsstyttu af Trump í húsnæði þingsins að frumkvæði danska vinstri-þingmannsins Pers Clausen. Að sögn danska listamannsins táknar styttan þá ógn sem stafar af Donald Trump gagnvart „reglubundinni heimsskipan“, „loftslaginu“ og „gildum“.
ESB. Nakinn Donald Trump, þakinn blaðgulli og sitjandi á öxlum minni karlmanns. Per Clausen segir:
„Móðgast hann á hann ekkert erindi á alþjóðavettvangi.“
Styttan, sem er um 2,6 metrar á hæð, er til sýnis á fjölförnum gangi milli tveggja þingbygginga. Sýningin á að standa fram á fimmtudag, samkvæmt The Telegraph.
Verkið nefnist „The Orange Plague“, eða „Appelsínugula plágan“, og er eftir danska listamanninn Jens Galschiøt. Trump heldur á vog og langri golfkylfu, ásamt bolta sem táknar jörðina. Undir honum kiknar minni, klæddur karlmaður. Trump hefur fengið titillinn „Konungur óréttlætisins” og á stalli styttunnar stendur:
„Ég sit á baki manns. Hann kiknar undan þunga mínum. Ég geri hvað sem er til að hjálpa honum. Nema að fara af baki hans.“
Myndi þingið heimila jafn niðrandi framsetningu á forseta framkvæmdastjórnar ESB?
Styttan er þakin 23 karata blaðgulli og sækir innblástur í ævintýri H.C. Andersen, „Nýju fötin keisarans“. Galschiøt lýsir Trump sem ógn við „reglubundna heimsskipan“, lýðræðisleg „gildi“ og „loftslagið“. Með „reglubundinni heimsskipan“ er almennt átt við þá heimsskipan undir forystu Bandaríkjanna sem varð til eftir fall Sovétríkjanna.
Danski vinstriþingmaðurinn Per Clausen stendur að baki boðinu um að sýna verkið. Hann segist ekki hafa áhyggjur af því hvernig forseti Bandaríkjanna kunni að bregðast við.
„Ef einhver er svo hörundsár að hann þolir ekki að þessi höggmynd sé sýnd á Evrópuþinginu á hann ekkert erindi á alþjóðavettvang,“ segir Clausen kokhraustur.
Höggmyndin hefur áður verið sýnd á loftslagsráðstefnunni COP30 í Brasilíu og öryggisráðstefnunni í München. Samkvæmt Euronews hyggst listamaðurinn fara með hana á loftslagsráðstefnuna COP31 í Tyrklandi í næsta mánuði.
Stóra spurningin er hvort ESB-þingið myndi heimila jafn niðrandi framsetningu á forseta framkvæmdastjórnar ESB?
