Ávarp Trumps forseta eftir að Bandaríkin sprengdu kjarnorkuvopnastöðvar Írans

Trump forseti tilkynnti laugardagskvöld að Bandaríkin hefðu varpað sprengjum á þrjár kjarnorkustöðvar í Íran. Trump skrifaði á Truth Social:

„Við höfum lokið mjög farsælli árás okkar á þrjár kjarnorkustöðvar í Íran: Fordow, Natanz og Esfahan. Allar flugvélar eru núna farnar úr lofthelgi Írans. Miklum sprengjum var varpað á aðal kjarnorkustöðina, Fordow. Allar flugvélar eru öruggar á leiðinni heim. Hamingjuóskir til hinna dudgmiklu bandarísku stríðsmanna okkar. Það er enginn annar her í heiminum sem hefði getað gert þetta. NÚ ER TÍMI TIL FRIÐAR! Þakka ykkur fyrir að veita þessu máli athygli.“

Samkvæmt Reuters voru B-2 sprengjuflugvélar notaðar í árásunum. Trump sagði að hann myndi ávarpa þjóðina klukkan 22:00 að austurstrandartíma í Hvíta húsinu laugardagskvöld.

„Ég mun flytja þjóðarávarp klukkan 22:00 í Hvíta húsinu varðandi mjög vel heppnaða hernaðaraðgerð okkar í Íran. Þetta er SÖGULEG STUND FYRIR BANDARÍKIN, ÍSRAEL OG HEIMINN. ÍRAN VERÐUR NÚNA AÐ SAMÞYKKJA AÐ LJÚKA ÞESSU STRÍÐI. ÞAKKA YKKUR FYRIR!“

Trump sagði við Fox News að Bandaríkin hefðu fullkomlega eyðilagt Fordow-verksmiðjuna í Íran með sex sprengjum sem fóru niður í neðanjarðarbyrgin.

Trump forseti, ásamt Pete Hegseth varnarmálaráðherra, Marco Rubio utanríkisráðherra og J.D. Vance varaforseta, ávarpaði þjóðina. Trump þakkaði hernum og Guði í stuttum ávarpi (sjá myndskeið neðst).

Í beinni:

Fara efst á síðu