Nýjustu tölur um atvinnuleysi ungs fólks sýna að Svíþjóð er með hæsta hlutfallið á Norðurlöndum og eitt það hæsta í Evrópusambandinu. Verst er ástandið í Rúmeníu með 28,8%, Svíþjóð er í öðru sæti með næst mest atvinnuleysi ungs fólks innan ESB.
Samkvæmt gögnum frá Eurostat og Statista mælist atvinnuleysi fólks á aldrinum 15–24 ára 26,6% í Svíþjóð. Finnland kemur þar á eftir með 20,2%, Ísland með 17,0%, Danmörk með 16,4% og Noregur með 11,7%.
Þessar tölur vekja athygli í ljósi þess að Svíþjóð og Finnland eru bæði aðilar að Evrópusambandinu, en Noregur og Ísland standa utan sambandsins. Gögnin gefa því ekki tilefni til að álykta að aðild að ESB tryggi sjálfkrafa lægra atvinnuleysi meðal ungs fólks.
Á Íslandi mældist atvinnuleysi ungs fólks 17,0% á fyrsta ársfjórðungi 2026, samanborið við 12,2% árið áður. Ein skýring gæti verið innflutningur ungs fólks til landsins, önnur sú að efnahagskerfið sé að dragas saman.
Þrátt fyrir að atvinnuleysi ráðist af fjölmörgum þáttum, svo sem efnahagsástandi, menntakerfi og stöðu vinnumarkaðar, sýnir samanburður Norðurlandanna að ESB-aðild ein og sér virðist ekki vera trygging fyrir betri stöðu ungs fólks á vinnumarkaði.
Svíþjóð, sem lengi hefur verið talin fyrirmynd í félags- og vinnumálum, er nú með næsthæsta atvinnuleysi ungs fólks í Evrópusambandinu samkvæmt nýjustu tölum. Það er af sem áður var.

Atvinnuleysi ungs fólks (15–24 ára) 2026
Rúmenía ████████████████████████████ 28,2%
Svíþjóð ██████████████████████████ 26,6%
Spánn ████████████████████████ 24,3%
Eistland █████████████████████ 21,7%
Grikkland ████████████████████ 21,0%
Frakkland ███████████████████ 20,5%
ESB-27 ███████████████ 15,4%
Holland █████████ 8,9%
Þýskaland ███████ 7,5%

