Ástralskir sjónvarpsmenn: „Straumhvörf“ í Evrópu

Pólitísk straumhvörf séu að eiga sér stað í Evrópu þar sem sífellt fleiri kjósendur hafna stefnu stjórnvalda og Evrópusambandsins í innflytjenda- og orkumálum. Þetta er mat ástralskra sjónvarpsmanna sem ræddu þróunina í Evrópu í þætti News 24.

Sérstaklega var fjallað um vaxandi fylgi Valkosts fyrir Þýskaland, Alternativ für Deutschland (AfD), í Þýskalandi og ummæli Alice Weidel, leiðtoga flokksins, um Evrópusambandið.

Weidel hefur samkvæmt þættinum krafist þess að greiðslur Þýskalands til ESB verði skornar verulega niður og sagt að Þjóðverjar eigi að „fá peningana sína til baka“. Þá var rifjað upp að hún hefur lengi gagnrýnt aðild Þýskalands að sambandinu og talað fyrir mögulegri þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð landsins innan ESB.

„Fólk er búið að fá nóg“

Caleb Bond, sem tók þátt í umræðunni, sagði að það ætti ekki að koma neinum á óvart að flokkar eins og AfD nytu aukins stuðnings. Þróunin hefði verið lengi í uppsiglingu. Hann gagnrýndi jafnframt þá tilhneigingu að afgreiða slíka flokka einfaldlega sem „öfgahægri“. Slíkar nafngiftir breyttu ekki ástæðum þess að kjósendur leituðu nýrra valkosta. Þetta má bera saman við ummæli forsætis- og utanríkisráðherra Íslands sem lifa í afritunarblöðru ESB sem notar slíkar upphrópanir um stjórnarandstæðinga miðstjórnarinnar í Brussel.

Að mati Caleb Bond er meginástæðan óánægja fólks með ríkjandi stjórnmál.

„Það sem við höfum er ekki að virka fyrir mig,“ sagði Bond þegar hann lýsti hugsunarhætti kjósenda sem væru tilbúnir að prófa eitthvað allt annað en hefðbundnu flokkana.

Þáttastjórnendurnir tengdu þessa þróun sérstaklega við fjöldainnflytjendur og orkustefnu Evrópusambandsins. Þeir héldu því fram að margir Evrópubúar þekktu ekki lengur samfélög sín vegna mikilla breytinga og að stefna Brussel í endurnýjanlegri orku hefði aukið óánægjuna enn frekar.

Þýskaland sérstakt tilfelli

Bond benti þó á að staðan í Þýskalandi væri sérstök vegna sögunnar. Minningar um nazismann og helförina hefðu mikil áhrif á pólitíska umræðu þar í landi og gagnrýnendur AfD reyndu að hans mati að tengja uppgang flokksins við þá fortíð.

Hann hafnaði þeirri túlkun og sagði breytingar á þýsku samfélagi, einkum vegna innflytjenda síðasta áratuginn, mun mikilvægari skýringu á auknu fylgi AfD.

Þáttastjórnandinn tók undir að eitthvað væri að breytast í Evrópu:

„ESB hefur ekki áttað sig á þessu. Vinstrimenn hafa ekki áttað sig á þessu, en fólk um alla Evrópu er að vakna og ég held að straumurinn sé algjörlega að snúast.“

Umræðan í ástralska þættinum er athyglisverð ekki síst vegna þess að þar er þróunin í Evrópu skoðuð utan frá. Niðurstaða þáttastjórnendanna er skýr: vaxandi fylgi AfD og annarra hægriflokka er ekki skyndilegt frávik heldur merki um dýpri pólitíska breytingu sem ráðamenn í Evrópu hafi enn ekki brugðist við.

Myndbandið má sjá hér að neðan.