Árangur af umbótum stjórnsýslunnar eftir fjármálahrun að engu hafður

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kemur með siðleysi útrásarvíkinga inn í stjórnsýsluna og brýtur þau lög sem Alþingi setti eftir fjármálahrun til að spyrna gegn brestum stjórnsýslunnar

Margt má segja um þann ljóta leik ríkisstjórnarinnar að reyna að koma því inn hjá fólki sem ekki þekkir til starfshátta ESB að það sé ekki að kjósa um inngöngu í ESB með því að segja já 29. ágúst. Já 29. ágúst þýðir að ríkisstjórninni er falið að gera samning um inngöngu Íslands í ESB. Ef já verður ofan á, þá verður ekki aftur snúið. Hætt er við að mörgum muni bregða, þegar þeir uppgötva sannleikann og skilja hversu svívirðilega þeir hafa verið blekktir af ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur.

En það sem er sorglegast af öllu er að utanríkisráðherrann okkar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hefur tekið með sér þá siðferðisbresti sem einkenndi gáleysi útrásarvíkinga sem leiddi til hruns fjármálakerfisins á Íslandi. Hún hefur gróflega farið inn á valdsvið og verkefni forsætisráðuneytisins með þingsályktunartillögunni um ESB-þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Öll mál er varða stjórnskipun ríkisins eru á borði forsætisráðuneytisins samkvæmt forsetaúrskurði og lögum um stjórnarráð Íslands. Utanríkisráðherrann hefur brotið þau lög sem Alþingi setti til að ná fram verulegum umbótum innan stjórnsýslunnar í kjölfar rannsóknarskýrslu Alþingis á fjármálahruninu.

Logi Kjartansson lögfræðingur hefur gert greiningu á málinu og lýsir athöfnum utanríkisráðherrans sem „valdþurrð”, það er að ráðherrann skorti lagalegan grundvöll fyrir framsögu máls sem er innan verkahrings forsætisráðuneytisins. Alvarleiki málsins er að málið varðar framsal lagalegs valds, framkvæmdavalds og dómsvalds til erlends ríkjabandalags og þótt umsýsla utanríkisráðuneytisins sé mikil, þá nær hún ekki yfir verkefni né vald forsætisráðuneytisins. Engin sérstök valdheimild liggur heldur fyrir á borði ríkisstjórnarinnar með staðfestum forsetaúrskurði um flutning slíks valds á milli ráðuneyta.

Lögbrot ráðherrans er gert í dagsljósi og öll ríkisstjórnin meðsek í valdníðslu utanríkisráðherrans, – enginn hefur hreyft andmælum innan ríkisstjórnarinnar. Það sem verra er, er að innra og ytra eftirlit með framkvæmdavaldinu hefur brugðist í þessu máli og má spyrja hvað allir þeir löglærðu menn sem starfa í stjórnarráðinu, á Alþingi að ekki sé minnst á lagadeild Háskóla Íslands séu að hugsa.

Undirritaður gerði smá úttekt með aðstoð gervigreindar um hvaða mál rannsóknarskýrsla Alþingis komst að sem þyrfti að betrumbæta í stjórnsýslunni til að spyrna við fótum að slíkur víðtækur atburður gerðist aftur eins og fjármálahrunið ár 2008. Einnig er farið yfir þau lög sem Alþingi setti í kjölfarið og útkoman síðan borin saman við greiningu Loga Kjartanssonar lögfræðings. Útkoman er sláandi:

Utanríkisráðherra fer ekki eftir lögum um Stjórnarráð. Hún fylgir heldur ekki þeirri verkaskiptingu sem forseti hefur tilkynnt í sérstökum forsetaúrskurði um valdsvið ráðherra og ráðuneyta. Þessi lög byggja beint á stjórnarskrá Íslands, þar sem segir að forsetinn láti ráðherra fara með vald sitt sem gerir forsetann einnig ábyrgan á að ráðherrar brjóti ekki úrskurði forsetans.

Miðað við markmið lagasetninga Alþingis til að betrumbæta stjórnsýsluna sýnir framkoma utanríkisráðherrans og ríkisstjórnarinnar allrar, að lög ein og sér duga ekki til að hafa hemil á framkvæmdavaldinu, þegar einstakir ráðherrar fari yfir valdmörk sín. Eftirlitið hefur einnig brugðist sem krefst sérstakrar rannsóknar til að skilja, hvað býr að baki.

Hér að neðan fylgir skýrsla um athugunina og niðurstöður rannsóknarinnar. Þetta er engan vegin tæmandi rannsókn, heldur fyrsta yfirferð sem skilar samt á eindreginn hátt niðurstöðu sem er andstætt lögunum, og því þarfleg ábending til viðkomandi að hefjast handa við athugun á vandanum.

Skýrslan hefur verið send til:

Forseta Íslands
Utanríkisráðuneytisins
Forsætisráðuneytisins
Alþingis
Umboðsmanns Alþingis
Ríkisendurskoðenda
Landskjörstjórnar

Skýrslan verður einnig send til nokkurra fjölmiðla.