Appelsínuguli kallinn er vondur

Jón Atli Benediktsson, fráfarandi rektor Háskóla Íslands, fellir krókódílatár yfir ákvörðunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta gagnvart háskólum í Bandaríkjunum sem hann segir að veki ugg innan íslenska háskólasamfélagsins án þess að útskýra með neinum rökum eða staðreyndum hvað Trump er að gera, eða um hvað málið snýst annað en að Trump sé að veitast að sjálfstæði háskóla og akademísku frelsi. Hægt hefði verið að spara lesendum Morgunblaðsins tíma frá því að lesa þetta þvaður með því að hafa viðtalið í einni setningu: „Trump er vondur maður“ eða eins og Trumphatarar segja fyrir vestan: „Appelsínuguli kallinn er vondur.“

Að mennt sé máttur er fyrir löngu orðið úrelt, þegar stuðningsmönnum Hamas er leyft að valsa um, slá upp tjaldbúðum og stunda daglegar árásir á gyðinga. Þegar háskólum er breytt í herbúðir vinstri aðgerðasinna í stað þess að kenna staðreyndir og vinna að þróun framleiðslugreina. Þegar akademían rís upp á afturlappirnar, breytir háskólanum í utanríkisráðuneyti og kennir Ísrael um árásir Hamas. Hámark frelsis akademíunnar fékkst í Þýskalandi á dögum Marx og Engels og allir vita hvert þau marxísku fræði hafa farið með heiminn og fara enn með heiminn. Það er engin ástæða til að vera að þvinga skattgreiðendur til að borga öðrum fyrir frelsi til að skapa öfl sem vinna að niðurrifi hins frjálsa samfélags. 

Hér koma nokkrar staðreyndir um hvað Bandaríkjastjórn og Trump forseti eru að glíma við varðandi akademíuna. Byrjum á Harvard.

Hvaða kröfum Trumps hafnaði Harvard?

Í bréfi til Harvard háskóla setti stjórn Trumps fram eftirfarandi kröfur:

  • Breyta stjórnarháttum til að draga úr völdum nemenda, kennara og stjórnsýslu sem „leggja frekar áherslu á að vera aðgerðasinnar en að stunda fræðimennsku.“
  • Að hætt verði að „taka tillit til kynþáttar, litarháttar, trúarbragða, kyns eða þjóðernis“ við starfsmannaráðningar og fara yfir núverandi kennara til að finna þá einstaklinga sem nota ritstuld í stað sjálfstæðra fræðistarfa. Einnig að hætt verði svipuðum sjónarmiðum í inntökuferli nemenda..
  • Breyta inntökuferlum til að „koma í veg fyrir að nemendur séu fjandsamlegir bandarískum gildum og stofnunum sem eru skráðar í stjórnarskrá Bandaríkjanna og sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkjanna.“
  • Fá utanaðkomandi aðila með samþykki alríkisstjórnarinnar til að endurskoða hópa innan skólans með tilliti til fjölbreyttra hugmyndafræðilegra sjónarmiða.
  • Fá utanaðkomandi aðila með samþykki alríkisstjórnarinnar til að endurskoða námsbrautir „námskeið og deildir sem kynda undir gyðingahatur eða endurspegla hugmyndafræðilega yfirtöku.“
  • Stöðva allar DEI-áætlanir innan skólans (DEI, diversity, equity, inclusion stendur fyrir fjölmenningu, réttlætingu og inngildingu).
  • Uppfæra siðferðisstefnu nemenda þegar hún er „ófullnægjandi til að koma í veg fyrir truflun á námsárangri, námi og kennslu í kennslustofu eða öðrum þáttum eðlilegs háskólalífs.“ Þessi krafa felur einnig í sér bann á andlitsgrímum.
  • Koma á ferli þar sem allir tengdir Harvard-aðilar geta tilkynnt brot á reglum til stjórnar háskólans og alríkisstjórnarinnar.

Dæmið að ofan varðar Harvard háskólann en háskólarnir í Princeton, Brown, Cornell, Northwestern og Columia hafa einnig fengið athugasemdir frá Bandaríkjastjórn. Meirihluti bandarísku þjóðarinnar styður ríkisstjórnina í þessum aðgerðum.

Málið er að þegar þetta heilaga akademíska frelsið hans Jóns er nýtt til að æsa til byltingar gegn þeim sem greiða háskólunum fé fyrir störf sín, þá er háskólinn sjálfur farinn að vinna gegn þeim gildum sem hið frjálsa samfélag stendur fyrir og verður að verja sig gegn. 

Þess vegna má vísa þessu blaðri fyrrverandi háskólarektors til heimahúsanna, sem einnig er staðfesting á því hvernig akademían fer með frelsið til að færa umheiminn langt burt frá öllum staðreyndum.

Fara efst á síðu