Andstæðingar Bandaríkjanna nota Trump til að sundra fólki

ESB sækist eftir sterkari stöðu á kostnað Bandaríkjanna

Daniel Hannan, sá góði Íslandsvinur, er vonsvikinn yfir hræðsluáróðri þeirra sem útskýra já við ESB á Íslandi með skírskotun til hins hræðilega Bandaríkjaforseta Donald Trump. En eins og Hannes Hólmsteinn Gissurarson skrifar um í annarri grein íhaldsmanna á ESB-þinginu, þá voru áform um endurvakningu hinnar misheppnuðu umsóknar Íslands frá árinu 2009, tekin áður en Trump komst til valda. Það er að segja í forsetatíð Joe Bidens. Áróðurinn gegn Trump er teiknaður upp af andstæðingum hans hjá ESB og handbendi ESB á Íslandi sjá um hugmyndafræðilega útfærslu gegn Íslendingum.

Hannan skrifar:

„Hvað í ósköpunum eru þeir að hugsa? Hvers vegna eru Íslendingar, sem eru meðal auðugustu, hamingjusömustu og frjálsustu þjóða heims, að ræða hvort hefja eigi aðildarviðræður við ESB að nýju? Þessi kalda, svarta eyja, með álíka marga íbúa og Croydon, heldur þjóðaratkvæðagreiðslu á laugardag. Stjórnarflokkarnir berjast fyrir já-atkvæði en hægrisinnuð stjórnarandstaða, ásamt nokkrum flokkum lengst til vinstri, styður nei. Skoðanakannanir sýna nú lítið en stöðugt forskot þeirra sem vilja aðildarviðræður.“

Hannan heldur áfram:

„ Íslendingar þurfa ekki þjóðaratkvæðagreiðslu til að sjá hvernig ESB er; þeir geta séð það nú þegar. Hættan er sú að ef þeir samþykkja viðræður muni Evrópusinnaðir leiðtogar þeirra þegar í stað hefjast handa við að samræma íslenska staðla reglum ESB í aðdraganda fullrar aðildar.

Það er auðvelt að sjá hvers vegna ESB vill fá Ísland inn. Verg landsframleiðsla á mann er miklu hærri þar en innan ESB, sem þýðir að Ísland yrði stór nettógreiðandi í sjóði sambandsins. Fiskimið landsins eru meðal þeirra best stýrðu í heimi, öfugt við rýrnuð fiskimið Evrópu. Aðild auðugs vestræns ríkis yrði auk þess mikilvæg vítamínsprauta fyrir ESB eftir Brexit.

Hvers vegna ætti land með eina elstu þingræðishefð heims að lúta lögum ESB – sérstaklega þegar landið hefur nú þegar fullan aðgang að mörkuðum ESB í gegnum Evrópska efnahagssvæðið? Ísland kannaði aðild áður, í kjölfar bankahrunsins 2008. En árið 2015 var orðið ljóst að íslenska hagkerfið hafði náð sér mun betur á strik en hagkerfi ESB og umsóknin var dregin til baka.

En hvað fær Ísland út úr þessu? Hvers vegna ætti land með eina elstu þingræðishefð heims að lúta lögum ESB – sérstaklega þegar landið hefur nú þegar fullan aðgang að mörkuðum ESB í gegnum Evrópska efnahagssvæðið? Hvað hefur breyst?“

Hannan ræðir sérstaklega þátt Donalds Trump og því miður fellur hann fyrir herbragði andstæðinga Bandaríkjanna og ef útkoman verður já á Íslandi er það vegna þess að Trump hótaði að yfirtaka Grænland. Hannan gengur svo langt að hann kennir Trump um ófarir hinnar frjálslyndu íhaldsstefnu í heiminum. Hann segir að ef Íslendingar falli í gildru ESB, þá sé það Trump um að kenna.

Hannan telur upp ófarir íhaldsflokka í nokkrum löndum sem dæmi um neikvæð Trump-áhrif en minnist ekkert á ófarir íhaldsflokksins í eigin landi, þegar flokkurinn tapaði nær helmings fylgi meðal annars vegna hneykslismála Boris Johnson forsætisráðherra:

  • Partygate og brot á sóttvarnarreglum
  • Owen Paterson-málið og ásakanir um spillingu og tvöfalt siðgæði
  • aukin skattbyrði og framfærslukostnaður
  • óánægja með stjórnunarhætti Johnsons
  • skipulags- og húsnæðismál í hefðbundnum íhaldskjördæmum
  • minnkandi traust á Johnson sjálfum

Ástandið í Bretlandi sýnir að veik stjórn íhaldsmanna sem leyfði Schengen og fjöldainnflutning ásamt afstöðunni í Covid og vegna eigin hneykslismála er skýringin á því að flokkar eins og Umbótaflokkur Nigel Farage hafa komist til valda. Sömu sögu má segja í flestum öðrum vestrænum ríkjum til dæmis í Finnlandi, Svíþjóð, Þýskalandi og Frakklandi. Þar eru valkostaflokkar á mikilli ferð og eru andsvar almennings og íhaldsmanna gegn leiðtogum sem hafa svikið íhaldsstefnu og gefið eftir fyrir ESB og markmiðum glóbalizta.

Í Bretlandi hafði Íhaldsflokkurinn áður alltaf eins og Sjálfstæðisflokkurinn á Íslandi um og yfir 40% atkvæða. Þótt það hlutfall hafi helmingast bæði á Bretlandi og á Íslandi, þá er fylgi íhaldsmanna svipað í Bretlandi og áður ef Umbótaflokkur Nigel Farage er talinn með. Á Íslandi reynir Sjálfstæðisflokkurinn að ná sér aftur á strik eftir óráðsíu Bjarna Benediktssonar að hleypa Vinstri Grænum í forsætisráðherrastólinn með stefnu glóbalizta meðal annars í innflytjenda- og loftslagsmálum.

Það eru bara Viðreisn og Samfylkingin sem hræða með Trump og þá aðallega í viðtölum við erlenda fjölmiðla. Trump er notaður sem ástæða til að kljúfa þjóðir og þá sérstaklega vegna þess að hann ræðir við Pútín sem enginn ESB-leiðtogi gerir, vegna stríðsmarkmiða gegn Rússlandi. ESB-sinnar gæta þess vandlega að minnast ekkert á Úkraínustríðið og vilja og tilraunir Trumps til að skapa frið í Rússlandi. Þar eru ESB og herforingjar glóbalizmans aðalhindrun í vegi friðar og peningum dælt í nýjar vopnaverksmiðjur og framleiðslu drápstækja sem nota á í allsherjarárás á Rússland svipað og Hitler gerði með Barbarossa-áætluninni.

Með orðum sínum um Grænland lét Trump á það reyna, hverjir væru vinir Bandaríkjanna í reynd. Og hann fékk það svart á hvítu. Fjölda ríkja sendi sýndarher til Grænlands til að „verja Grænland fyrir innrás Bandaríkjanna.“ Dagskipun stjórnvalda í Danmörku:

„Skjótið skarpt ef Bandaríkjamenn koma!“

Það var nú allur vinskapurinn.