Alþjóðlega leyniklíkan heyir efnahagsstríð gegn Bandaríkjunum til að stöðva Trump

Trump á leið um borð á forsetaflugvél Bandaríkjanna © Hvíta húsið

Grant Stinchfield er stjórnandi þáttarins „Stinchfield Tonight“ á Real America’s Voice, sem er á dagskrá öll virk kvöld. Hann má einnig heyra á útvarpsstöðinni AM870 „The Answer“ í Los Angeles í Kaliforníu. Hann skrifar greinar í The Gateway Pundit og eftirfarandi birtist eftir hann í gær:

Alþjóðlega leyniklíkan heyir efnahagsstríð gegn Bandaríkjunum til að stöðva Trump… Ég get sannað það!

Keyra verðið upp. Láta Bandaríkjamenn finna til. Kenna Trump um. Demókratar vinna.

Ég tel að valdamiklir alþjóðlegir hagsmunaaðilar samhæfi umfangsmikla efnahagslega þrýstingsherferð til að hjálpa Demókrötum að ná meirihluta á Bandaríkjaþingi og stöðva stefnuna „Bandaríkin fyrst“. Alþjóðlega valdaelítan er „heimsveldið“ og heimsveldið gerir gagnárás.

Allt frá árásum Úkraínu á rússneskar olíuhreinsistöðvar til að láta heimsmarkaðsverð á dísilolíu rjúka upp, yfir í viðskiptastríð Kanada við okkur. Stríð sem er efnahagslega gjörsamlega órökrétt af þeirra hálfu. Það er leyniklíkan sem kyndir undir verðbólgu, ekki Trump.

Viltu frekari sannanir fyrir því að erlendir valdabraskarar standi að þessari efnahagsárás á Bandaríkin? Í þessari viku bárust fréttir af því að evrópskir skuldabréfamiðlarar segðust ekki bera traust til bandarískra ríkisskuldabréfa.

Bandaríkin sæta fjárhagslegri árás og við skoðum hvernig þessar vísvitandi truflanir geta þrengt að fjárhag Bandaríkjamanna. Heimsveldið telur að fjárhagslegar þjáningar þínar séu leið þess aftur til valda.

Við förum yfir þetta í þættinum Stinchfield í dag. Keyra verðið upp. Láta Bandaríkjamenn finna til. Kenna Trump um. Demókratar vinna.