Það eru fleiri en Elon Musk sem tengja merki kommúnismans við Evrópusambandið. Arnar Þór Jónsson formaður Lýðræðisflokksins gerir slíkt hið sama í pistli dagsins, þegar hann skrifar um undirlægjuhátt íslenskra stjórnmálamanna við ESB og vegferð ESB í dag. Enn og aftur varar Arnar Þór við samþykkt á bókun 35 sem neglir Ísland fast við einræðislega stjórnarhætti Evrópusambandsins.
Arnar Þór minnist á mesta niðurlægingartímabil í Íslandssögunni á 17. og 18. öld, þegar örsnauður og varnarlaus almúginn dró fram lífið í þrældómi, kulda og vosbúð, þar sem bændur og embættismenn ráðskuðust með daglegt líf fólks, á sama tíma og Alþingi var lítið annað en innantóm skel, þar sem löggjafarstarf fólst í að innleiða tilskipanir erlends konungsvalds samhliða því að kveða upp harða dóma yfir smælingjum sem í neyð sinni höfðu tekið snæri eða fiskroð sér til lífsbjargar.
Arnar minnir á niðurlægingu Sovét-„lýðveldanna“ á 20. öld birtist daglega í lyginni um að þau væru sjálfstæð og lýðræðisleg, því þjóðþing þeirra voru innantómar skeljar og öll raunveruleg völd voru í höndum kommúnistaflokksins sem var undir stjórn Moskvu. Ef leiðtogar þessara þjóða sýndu óhlýðni, sbr. t.d. Ungverjaland 1956 og Tékkóslóvakía 1968, gripu Sovétríkin til hernaðaríhlutunar.
Mulningsvél ESB
Arnar Þór skrifar:
„Allt framangreint kemur upp í hugann þegar skoðuð er mynd af embættismönnunum í sameiginlegu EES nefndinni sem fyrr í þessari viku hittust til að „segja JÁ“ (aldrei „NEI“) við þykkum bunka af regluverki frá valdinu í Brussel, en samtals voru í bunkanum 79 reglugerðir og tilskipanir frá ESB. Í framhaldinu verða sumar þeirra sendar Alþingi til samþykktar, formsins vegna, en aðrar þurfa engan gúmmístimpil þaðan. Hvert er þá hlutverk Alþingis í þessu ferli? Getur það neitað að samþykkja? Í leit að svörum er nærtækast að rifja upp hvað sagt var þegar þriðji orkupakkinn barst Alþingi til samþykktar árið 2019: Þá var sagt „útilokað“ að Íslendingar gætu fengið undanþágu frá innleiðingu þriðja orkupakkans. Í viðtali við Rúv bætti fræðimaður í Evrópurétti við: „Það er náttúrulega nú þegar búið að semja á vettvangi sameiginlegu EES nefndarinnar um upptöku löggjafarinnar í EES-samninginn og við fengum ákveðnar undanþágur“ […]] „Það myndi því ekki skila neinu að senda málið aftur þangað.“ Þarna er verið að lýsa mulningsvél, en ekki sjálfstæðu, lýðræðislegu lagasetningarferli.“
Teppaleggja á landið með vindorkugörðum
Arnar Þór segir það mikilvægt að rifja þetta upp núna þegar Alþingi hyggst samþykkja frumvarp utanríkisráðherra um bókun 35, sem gerir varnir Íslands enn veikari en áður og mun auðvelda umbyltingu raforkumarkaðar hérlendis með stórfelldi hækkun raforkuverðs til heimila og fyrirtækja, en þegar munu vera komnar fram 36 eða 37 umsóknir um vindorkugarða víðsvegar um landið og allir þessir garðar nema 2 munu verða í eigu erlendra aðila:
„Í þessu ljósi er mögulega hægt að ímynda sér hvaðan þrýstingurinn kemur á alþingismenn að samþykkja frumvarpið sem allra fyrst. Ásýnd Íslands mun breytast hratt þegar farið verður að „teppaleggja“ landið með vindorkugörðum. Fjárfestar og erlend stórfyrirtæki munu hagnast en lífskjör almennings skerðast, „þökk“ sé kjörnum þingfulltrúum þessa sama almennings.“