Alice Weidel: „Það verður að stöðva blóðbaðið í Úkraínu“

Það er kominn tími til að binda enda á stríðið í Úkraínu, sem leiðir aðeins til gríðarlegs og tilgangslauss manntjóns, segir hún, að því er Swebb-TV greinir frá.

Leiðtogi Valkosts fyrir Þýskaland, AfD, Alice Weidel, gengur þvert gegn opinberri stefnu Þýskalands í varðandi Úkraínustríðið.

Hún vill hætta að senda fjármuni til Úkraínu og hefja viðræður við Rússland til að binda enda á stríðið.

„Við þurfum á erindrekstri milli austurs og vesturs að halda, segir hún. Sem hluti af ríkisstjórn munum við, AfD, vinna óþreytandi að því að tryggja frið í Úkraínu og beita okkur fyrir markvissum friðarviðræðum. Það er kominn tími til að binda enda á þetta tilgangslausa manntjón.“

Úkraínu verður heldur ekki heimilað að ganga í NATO eða ESB. Það er „óásættanlegt“ að mati AfD.

„Við munum stöðva alla aðstoð við Úkraínu – engir fleiri skattpeningar, engin fleiri vopn og engin frekari aðkoma þýskra hermanna.“