Ajatollah Írans, Makarem Shirazi, 98 ára, gamall, gaf út alþjóðlega morðskipun fatwa til múslima um allan heim að myrða Donald Trump Bandaríkjaforseta, sem og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.
Íranski fréttamiðillinn Mehr News Agency greindi frá því á enskri vefsíðu sinni á sunnudag að Stór-síjta-Ajatollah Íran hefði gefið út fatwa-dauðaskipun, þar sem hann segir hvern þann sem ógnar leiðtoganum vera óvin Guðs sem verður að berjast gegn samkvæmt íslömskum kenningum.
Eftir að glæpamaðurinn á forsetastól Bandaríkjanna og leiðtogar barnamorðingjastjórnar síonista hótuðu leiðtoga íslömsku byltingarinnar, Ayatollah Seyyed Ali Khamenei, og eldri sjítaklerkum sem þekktir eru sem Marja, þá sendi hópur trúaðra beiðni til hans hátignar stór-Ayatollah Makarem Shirazi að virkja skyldur múslima við slíkum ógnum. Stór-Ayatollah Makarem svaraði spurningu fylgjenda sinna:
„Hver sá einstaklingur eða stjórn sem ógnar leiðtoganum eða Marja (megi Guð banna slíkt) er talinn óvinur Guðs. Öll samvinna eða stuðningur múslíma eða íslamskra ríkja við þennan óvin er haram eða bannaður. Það er nauðsynlegt að múslimar um allan heim láti þessa óvini sjá eftir orðum sínum og mistökum.“
Að ógna leiðtoga íslamska heimsins er stríð gegn íslam. Samkvæmt Kóraninum hefur það í för með sér þunga refsingu. „Sannarlega er refsing fyrir þá sem heyja stríð gegn Guði og sendiboða hans…“ Að styrkja fylkingu múslima og einingu íslamskra raða er skylda.
Greinandinn Khosro Isfahani varar við því að þessi fatwa sé svipuð þeirri sem var gerð gegn rithöfundinum Salman Rushdie sem hefur leitt til nokkurra morðtilrauna, þar á meðal hnífstunguárásar árið 2022 í Chautauqua í New York þar sem Rushdie var alvarlega særður og varð blindur á öðru auganu.
1- Þetta er fatwa (trúarleg tilskipun) undirrituð og innsigluð af stór-ayatollah sem svarar Estefta (formlegri fyrirspurn) þar sem forseti Trump er nefndur beint.
2- Í meginatriðum svipuð morðfatwa gegn Salman Rushdie.
3- Ólíkt fatwa gegn kjarnorkuvopnum sem ekki er til, er þessi raunveruleg.