Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, hefur sætt mikilli gagnrýni eftir að hann lýsti því yfir að hann ætli að stjórna landinu óháð því hvort nýkjörinn forseti Póllands, Karol Nawrocki, beiti neitunarvaldi gegn lagafrumvörpum ríkisstjórnarinnar sem hann hefur stjórnarskrárbundinn rétt að gera.
Donald Tusk sagði:
„Við munum leggja fram tilbúin frumvörp, en ef nauðsyn krefur munum við stjórna og taka ákvarðanir jafnvel með forseta sem reynir að hindra góðar breytingar.“
Yfirlýsingin kom í tengslum við tilkynningu forsætisráðherrans um að hann myndi óska eftir atkvæðagreiðslu um traust þingsins Sejm. Tusk benti á að „neyðaráætlun“ hefði þegar verið gerð til að takast á við nýjar aðstæður með íhaldsmanni á stóli forseta:
„Það er erfitt að segja til um það fyrirfram hvernig nýi forsetinn muni bregðast við. Ef hann sýnir vilja til samstarfs mun það koma jákvætt á óvart og þá munum við bregðast við með fullkomnu gagnsæi. Ef ekki – þá þarf ekkert að vera að bíða eftir neinu. Við munum hefjast handa óháð aðstæðum, til þess vorum við kjörin.“
Viðbrögð við þessum fáheyrðu yfirlýsingum komu fljótlega í Póllandi. Gagnrýnendur telja að Tusk sé að búa sig undir að sniðganga neitunarvald forsetans með tilskipunum og öðrum ráðum.
Þannig skrifar lögfræðingurinn Jerzy Kwasniewski, formaður Ordo Iuris, á X:
„Donald Tusk líkaði þetta ekki. Svo ég segi það hreinskilnislega: Pólverjar hafa ekki gefið ykkur rétt til að setja lög, því þeir kusu forseta sem getur neitað tillögum ykkar. Það er það sem lýðræði snýst um. Það er ekkert pláss fyrir „neyðaráætlanir“, því þær eru það sama og valdarán.“
Rafal Ziemkiewicz skrifar á X að Tusk sé með bakið upp við vegginn og tefli á tæpasta vað:
„Ég túlka þetta sem merki til Þjóðverja: „Ég mun ekki láta kasta mér fyrir úlfana. Ef þið gefið mér ekki fallhlíf, þá mun ég eyðileggja leik ykkar við Bandaríkjamenn.“
ESB-þingmaðurinn Piotr Müller skrifar:
„Donald Tusk hefur vinsamlega lýst því yfir að hann muni núna hefja störf eftir 18 mánuði við völd. 18 glataðir mánuðir fyrir Pólland. Trúið þið honum?“
Margir líta núna á Donald Tusk sem hugsanlega ógn við stjórnskipan Póllands, – sérstaklega í ljósi þess að ESB hefur ekki sýnt áhuga á að taka á fyrri brotum hans.