Áhætta bóluefnanna var falin – „stærsta hneykslið á ævinni“

Embættismenn í Biden-stjórninni ákváðu að leyna áhættunni sem fylgdi „Covid-bóluefninu“. Viðvörunarmerki voru hunsuð. Þetta segir bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Ron Johnson í viðtali við Newsmax. Hann kallar þetta stærsta hneyksli ævinnar.

Öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins, Ron Johnson heldur því fram að fyrir liggi sönnunargögn um að embættismenn í Biden-stjórninni hafi vísvitandi leynt áhættunni sem fylgdi svo kölluðum Covid-bóluefnum.

Þeir hafi vitað að kerfið sem notað var til að greina gögn myndi ekki greina viðvörunarmerkin. Johnson skrifar á X:

„Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna, FDA, vissi að kerfi þeirra náði ekki að flagga viðvörunarmerkjum vegna Covid-sprautunnar. Í stað þess að gera þær upplýsingar opinberar kusu embættismenn innan stofnunarinnar að leyna þeim og ljúga að almenningi. Þetta er gríðarlegt hneyksli og kominn tími til að fjölmiðlar fari að fjalla um það.“

Hann telur að hefðbundnir fjölmiðlar hafi „hunsað stærsta ríkisstjórnarhneyksli ævi minnar“ og segir í Newsmax:

„Ég get ekki fengið neinn af hefðbundnu fjölmiðlunum til að fjalla um þetta. Ég tel þetta vera stærsta ríkisstjórnarhneyksli sem ég hef upplifað á ævi minni.“

Að hans sögn uppgötvaði stofnunin viðvörunarmerkin en kaus að hunsa þau:

„Þeir héldu áfram að nota kerfið sem átti að fela þau og héldu áfram að ljúga að bandarískum almenningi.“