Ræðumenn Áfram Ísland á boðuðum upphafsfundi þann 6. júlí n.k.: Björn Zoega læknir, Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður og fv. forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson.
Samtökin Áfram Ísland sem mæla með Nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst hafa boðað til upphafsfundar í Sjálfstæðissalnum (gamla Nasa) við Austurvöll mánudaginn 6. júlí kl 17:00.
Í tilkynningu samtakanna á heimasíðu þeirra, þar sem einnig er hægt að skrá sig í samtökin segir:
Áfram Ísland er vettvangur fólks sem velur íslenska framtíð á eigin forsendum í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst.
Áfram Ísland er helgað baráttu sem drifin verður áfram af jákvæðni og bjartsýni. Áfram Ísland er hreyfing fólks með fjölbreyttan bakgrunn og frá ólíkum sviðum íslensks þjóðfélags. Samnefnarinn er að íslenska þjóðin sé fullfær um að sækja fram um leið og hún tekst á við áskoranir sem við blasa hverju sinni. Stór hluti þjóðarinnar telur að Ísland sé land tækifæranna og að hagsmunum Íslands sé best borgið utan ESB.

Ræðumenn á upphafsfundinum verða:
- Björn Zoëga, læknir
- Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður og sérfræðingur í tæknirétti
- Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrv. forseti Íslands
Fundarstjóri verður Halldór Benjamín Þorbergsson hagfræðingur.
Fundinum verður streymt og er fólk hvatt til að koma saman og fylgjast með fundinum á heimilum og í byggðalögum um allt land. Streymið verður opið á helstu vefmiðlum og heimasíðunni en þeir sem skrá sig í félagið fá einnig sendan hlekk á streymið.
Áfram Ísland er opinn vettvangur fyrir alla þá sem velja sjálfstæða framtíð Íslands. Fundurinn við Austurvöll er öllum opinn.
Þjóðólfur hvetur alla sem geta að mæta á fundinn en annars er hægt að horfa á í beinu streymi á Internet. Væri gott ef Íslendingar búsettir erlendis sem ekki hafa íslensk símanúmer gætu einnig skráð sig í samtökin en þau krefjast íslensks símanúmers sem allir hafa ekki sem búa erlendis.
