Loksins er eitthvað að gerast, útifundur á Austurvelli til að mótmæla galopnum landamærum. Íslenski fáninn klæðir Austurvöll fallega og aðstandendur segja að lögreglan hafi sagt að allt að þúsund manns hafi mætt. Á samfélagsmiðlum má sjá myndir og myndskeið af fundinum eins og sjá má hér að neðan. Vonandi verður þessi grasrótarandstaða að sterkri hreyfingu landsmanna til að kasta af sér oki þess helsjúka vókisma, pólitíska rétttrúnaðar, sem tröllríður stjórnmálunum á Íslandi í dag.

Ýmsir fjölmiðlar hafa skrifað um málið en lagt meira áherslu á stympinga við Antifa og transhreyfingu sem reyndu að eyðilegga útifundinn með bauli og sírenum. RÚV auglýsti fyrirfram að um átök urðu að ræða til að hræða almenning frá því að mæta á fundinn á Austurvelli. Eru það gróf inngrip RÚV til að hindra lýðræðislega hreyfingu.

Ýmis vókuð menningarnátttröll eins og Egill Helgason, alræmdur rúvari, höfðu ekkert annað að koma með en þann furðulega útúrsnúning að tengja töluna 18 á bol eins ræðumanna við Hitler. Sorpmiðlar hafa tekið þetta upp eftir Agli sem augsýnilega er háður nazismanum til að geta kreista út úr sér einhverjum orðum.

Flest ummæli á samfélagsmiðlum eru hins vegar mjög jákvæð og rætt er um að endurtaka og halda slíkum mótmælum áfram. Það er rétt og mikilvægt því framtíð Íslands er í húfi. ESB-ráðherrar selja út land og þjóð fyrir kokteilboð hjá hirðinni í Brussel og þjóðin situr á klakanum með veika stjórnmálastétt sem varla er mikið hald í. Hér að neðan eru nokkur dæmi:
Gústaf Níelsson skrifar á Facebook: Það var ánægjulegt að Íslendingar, þvert á stjórnmálaflokka, skuli hafa fjölmennt á Austurvöll í gær til þess að finna að háskalegri stefnu stjórnmálamanna í útlendingamálum. Stjórnmálin hafa afvegaleiðst, skelfilega. Þessar aðstæður sýna almenningi svart á svítu að myndast hefur gjá á milli þings og þjóðar og nú „sýður á keipum og syngur í reipum.“ Þjóðin hefur fengið nóg og vill ekki láta moka landinu undan sér.
„Áfram Ísland og til hamingju með daginn sjómenn um land allt.“

Júlíus Valsson skrifar á Facebook: Mjög vel heppnaður fundur á Austurvelli í dag. Mogginn talar um „ryskingar“ og Vísir um „stympingar.“ Ekki var ég var við slíkt. Það er hins vegar engin frétt í augum fjölmenningarsinna hve margir sáu ástæðu til að mæta á Austurvöll og mótmæla stefnu ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum. Um þúsund manns mættu á Austurvöll að sögn lögreglu. Nokkrir atvinnumótmælendur reyndu að trufla fundinn m.a. með sírenduvæli en þeir gáfust fljótt upp. RÚV talar um „orðaskipti“ á milli fullveldissinna og No Boarders sem er rétt. Þeir urðu sér til skammar með barnalegum skrílslátum.

Yoa Dagrun skrifar á Facebook: Vel gert Íslendingar


Guðmundur Jónas Kristjánsson skrifar á Facebook: Frábær fundur þúsunda Íslendinga á Austurvelli í dag. Örfá úr hryðjuverkasamtökum No Borders reyndu að trufla fundinn en tókst ei.

Helga Birgisdóttir skrifar á Facebook: Gott að hitta gott fólk og fá sér kaffi og með’í í góða veðrinu, eftir fjölmenn mótmæli gegn opnum landamærum. Fólk komið með nóg af ‘þegiðu’ um stöðuna í hælisleitaendamálum. Er kannski hægt að vera rasisti um eigið þjóðerni? Er í lagi að ég hafi skoðun – án þess að vera stimpluð vond manneskja? Er fólk að átta sig á að íslendingum fer fækkandi og innflytjendum (með allt önnur gildi) fer hratt fjölgandi? Ætlum við að bjarga hingað þúsundum sem hafa mjög ólíkt gildismat og menningarlegan grunn? Má setja undir smásjá hverjum er hleypt inn í landið? Eru glæpagengi hjartanlega velkomin? Er kaos, stríð, ótti og sundrung etv. hluti af plönum globalista um heimsyfirráð?