Afmæliskveðja: Til hamingju með 250 ára afmælið USA!

Ef eitthvað stendur skýrt upp úr í hinum miklu hátíðahöldum í Bandaríkjunum, þá er það frelsið og frelsisþrá Bandaríkjamanna. 250 ár eru liðin frá undirskrift sjálfstæðisyfirlýsingarinnar sem þjóðin elskar og foringjar fólksins sjá til að aldrei mun gleymast. Þar hafa Íslendingar mikið að læra til að skilja hversu mikilvægt það er hverju mannsbarni að geta um frjálst höfuð strokið og fá að ákveða örlög sín sjálfur.

Þjóðólfur fagnar þessu merka afmælisdegi og óskar Bandaríkjamönnum til hamingju með þann árangur sem frelsið hefur gefið þeim. Sérstakar kveðjur til Donald Trumps, forseta, sem hefur staðið af sér morðárásir, svindl, lygar og botnlausan rógburð demókrata sem eru að breytast í kommúnista í dag.

Bandaríkin hafa ætíð verið vinir Íslendinga og beittu sér meðal annars að lausn landhelgisdeilunnar við Breta. Velferð Ísland væri ekki sem hún er í dag án aðkomu Bandaríkjanna. Það er því aumur blettur í Íslandssögunni að núverandi valdhafar á Íslandi, bæði í ríkisstjórn og á Bessastöðum, skulu hafa fallið í þá skammargryfju að vinna gegn Bandaríkjunum og þá sérstaklega lýðræðislega kjörnum forseta þeirra. Donald Trump.

Samtímis og Þjóðólfur fagnar með Bandaríkjamönnum merkri sögu þeirra, hvetur miðillinn Íslendinga að losa sig við núverandi ríkisstjórn hið fyrsta fyrir að reyna að selja þjóðina til Evrópusambandsins í von um hégómastöður íslenskra ráðamanna í Brussel. Íslenska þjóðin getur verið stolt af sögu sinni eins og Bandaríkjamenn, sýnt djúpa ættjarðarást eins og þeir og haldið þjóðlegum gildum landsins á lofti eins og Bandaríkjamenn sínum.

Fögnum með Bandaríkjamönnum fyrir afstöðu þeirra til frelsisins, sannleikans, sjálfstæðisins og skaparans. Varðveitum sjálfstæði Íslands með því að hafna alfarið atlögu fimmtu herdeildar óvina landsins sem vilja koma Íslendingum í hendur miðstjórnarinnar í Brussel í atkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst n.k. Við eigum Bandaríkjunum mikið að þakka og skulum ekki vanmeta vináttu þeirra.

Til hamingju Bandaríkjamenn og allur heimurinn með 250 ára afmæli lýðveldis Ameríku!