AfD fékk hreinan meirihluta atkvæða þeirra sem mættu sjálfir á kjörstað í fylkiskosningunum í Saxlandi-Anhalt, eða 51,2%. Meðal póstkjósenda fékk flokkurinn hins vegar aðeins 24,3%. Munurinn nemur tæplega 27 prósentustigum. Þýskir gagnrýnendur hafa kallað eftir nánari rannsókn á muninum, en fyrri kosningar sýna að AfD hefur lengi verið mun veikara meðal póstkjósenda en þeirra sem mæta á kjörstað.
Það kom mörgum á óvart þegar ítarlegri tölur úr kosningunum í Saxlandi-Anhalt lágu fyrir eftir sögulegan sigur AfD. AfD fékk 51,2% atkvæða þeirra sem kusu á kjörstað, samkvæmt tölum sem þýskir fjölmiðlar hafa birt úr gögnum Hagstofu Saxlands-Anhalt. Meðal þeirra sem kusu með pósti fékk flokkurinn hins vegar aðeins 24,3%. Munurinn er 26,9 prósentustig.
Þetta hafði veruleg áhrif á heildarniðurstöðuna. Þegar öll atkvæði höfðu verið talin stóð AfD í 43,8% og fékk 39 af 83 þingsætum. Flokknum vantaði þrjú sæti upp á hreinan meirihluta.
Án póstatkvæðanna hefði fylgi AfD meðal þeirra sem mættu á kjörstað eitt og sér verið yfir 50%.
German Supreme Court ruled paper-ballots only because electronic voting is effectively unverifiable @CollinFrMcMahon @ben_harnwell pic.twitter.com/BHbVQdvt55
— Bannon’s WarRoom (@Bannons_WarRoom) September 2, 2026
CDU fór öfuga leið
Munurinn var ekki aðeins áberandi hjá AfD. CDU fékk aðeins 14,5% atkvæða á kjörstað, en 24,3% meðal póstkjósenda. SPD, Græningjar og Die Linke voru einnig sterkari meðal póstkjósenda en kjósenda á kjörstað. AfD var því eini stóri flokkurinn þar sem munurinn gekk svo afgerandi í hina áttina.
Alls kusu 363.751 með pósti, sem samsvarar 27,4% allra kjósenda. Árið 2021 hafði hlutfallið verið 29,1%. „Kerfisbundin meðhöndlun“ segir lögmaður.
Þýski lögmaðurinn Dirk Schmitz hefur vakið athygli á tölunum og segir muninn að hans mati slíkan að rétt sé að skoða hann sérstaklega. Hann hefur meðal annars bent á sveitarfélög þar sem munurinn var enn meiri en í fylkinu í heild. Samkvæmt greiningu hans fékk AfD meðal annars 63,2% atkvæða á kjörstað í Mertendorf en 24,5% póstatkvæða. Í Hedersleben var munurinn 62,9% gegn 26,4%.
Schmitz hefur sagt tölurnar vera að hans mati vísbendingu um mögulega „kerfisbundna meðhöndlun“, en tekið sérstaklega fram að þær séu ekki sönnun þess. Tölfræðilegur munur milli tveggja kjósendahópa getur verið mikill án þess að um fölsun atkvæða sé að ræða.
🇩🇪🚨‼️ MAIL-IN VOTING ANOMALY
— Lord Bebo (@MyLordBebo) September 7, 2026
EVERY PARTY EXCEPT THE AfD HAS MORE MAIL-IN VOTES THAN IN-PERSON VOTES!
The AfD voters don’t like mail? Come on.
How can every other party have received more mail-in votes than in-person votes, and by such a large margin?
If we removed mail-in… pic.twitter.com/fEcvn9wEED
Mynstrið sást líka 2021
Þjóðólfur fór yfir opinber gögn frá síðustu fylkiskosningum árið 2021 til að athuga hvort slíkur munur hefði komið fram áður. Svarið er já.
Í Leuna fékk AfD til dæmis 34,6% atkvæða á kjörstað, en 27,9% þegar póstkjósendur höfðu einnig verið taldir með. Í Köthen var AfD með 24,5% á kjörstað en 21,1% alls. Í Zerbst fékk flokkurinn 26,2% á kjörstað en 23,2% alls. Opinberar niðurstöður sýna þannig að AfD var þegar árið 2021 víða greinilega sterkara meðal kjósenda sem mættu sjálfir á kjörstað.
Munurinn árið 2026 er hins vegar miklu meira áberandi vegna þess hversu mikið fylgi AfD hefur aukist.
AfD hvetur stuðningsmenn til að kjósa á kjörstað
Þýskir kosningafræðingar benda einnig á sérstakt atriði sem getur skýrt hluta munarins. AfD hefur árum saman lýst tortryggni gagnvart póstatkvæðagreiðslu og hvatt stuðningsmenn sína til að mæta sjálfir á kjörstað. Eric Linhart, kosningafræðingur við Tækniháskólann í Chemnitz, segir þetta koma skýrt fram í niðurstöðum.
Ef stuðningsmenn eins flokks forðast kerfisbundið póstatkvæðagreiðslu verður hlutfall hans eðlilega lægra meðal póstkjósenda.
Svipað mynstur hefur komið fram í öðrum kosningum. Í sambandsþingskosningunum 2025 var AfD með lægsta hlutfall póstkjósenda meðal stærri flokka.
Engin sönnun um umfangsmikið kosningasvindl
Kosningayfirvöld í Saxlandi-Anhalt hafa sagt póstatkvæðagreiðsluna örugga og enn hafa ekki komið fram gögn sem sýna fram á umfangsmikla fölsun eða skipulagða meðhöndlun atkvæða. Það þýðir þó ekki að óeðlilegt sé að rýna í tölurnar.
Munur upp á tæplega 27 prósentustig milli kjörstaða og póstatkvæða hjá stærsta flokki fylkisins er í sjálfu sér fréttnæmur. Spurningin er hversu stór hluti þessa gríðarlega munar skýrist af mismunandi samsetningu kjósendahópanna og hversu stór hluti af þeirri ákvörðun stuðningsmanna AfD að forðast póstatkvæðagreiðslu.
Það væri hægt að fá enn nákvæmara svar þegar endanleg, sundurliðuð kosningagögn liggja fyrir.
"Interesting fact: without mail-in ballots, the AfD would have won 51% of the vote and secured an absolute majority.
— Martin Sellner (@MartinSellner_) September 7, 2026
Mail-in ballots made up 25.7% of all votes cast.
This system is easily manipulated and mail-in voting should be banned everywhere. pic.twitter.com/loyO47ExTr
