AfD fær í fyrsta sinn þingforseta í þýsku sambandslandi

Tobias Rausch hefur verið kjörinn forseti sambandslandsþings Saxlands-Anhalt. Þar með fer stjórnmálaflokkurinn Valkostur fyrir Þýskaland, AfD, í fyrsta sinn með stjórn þingstarfa á sambandslandsþingi í Þýskalandi.

Kosningin fór fram í Magdeburg á þriðjudag, mánuði eftir að AfD hlaut 44 prósent atkvæða í kosningum til þingsins.

Flokkurinn hefur nú 39 þingsæti, að því er Deutsche Welle greinir frá.

Með kjöri Rauschs í embætti þingforseta hefur kosningasigurinn jafnframt tryggt AfD lykilstöðu í stjórn þingsins.

Flokkurinn fékk einnig varaforseta þingsins sama dag þegar Hans-Thomas Tillschneider var kjörinn með 44 atkvæðum gegn 38. Hann naut því einnig stuðnings þingmanna utan AfD.