Af hverju styðjið þið barnaníðinga?

Javier Milei, forseti Argentínu spurði glóbaliztana í ræðu sinni í Davos, hvers vegna þeir styðja öfgakennda kynja- og LGBTQ hugmyndafræði sem ryður braut fyrir barnaníðinga. Milei veittist hart að kynseginfræðunum (sjá YouTube að neðan).

Eftir að hafa verið kynntur af Børge Brende, forseta WEF, sagði Milei:

„Umræðuvettvangur eins og World Economic Forum, kynnir dagskrá LGBTQ og reynir að þröngva þeirri hugmynd upp á okkur, að konur séu karlar og karlar séu konur sem eingöngu er byggt á sjálfsskynjun….Í sinni ýtrustu mynd er kynjahugmyndafræðin hreint barnaníð. Þetta eru barnaníðingar. Svo ég vil vita: hverjir styðja slíka hegðun?“

Karlmaður sem sagðist kona nauðgaði konu í kvennafangelsi

Milei kom kom með umdeild dæmi, til dæmis þegar karlmaður í Bandaríkjunum sagðist vera kona og var vistaður í kvennafangelsi þar sem hann beitti síðan kvenkyns fanga kynferðislegu ofbeldi. Hann vísaði einnig til Ólympíuleikanna í fyrra, þegar alsírski hnefaleikakappinn Imane Khelif vann gull í kvennaflokki, þrátt fyrir miklar umræður um rétt að keppa á móti konum.

Forseti Argentínu benti einnig á mál í Bandaríkjunum þar sem tveir samkynhneigðir karlmenn voru dæmdir fyrir að hafa kerfisbundið nauðgað ættleiddum börnum sínum og sagði það dæmi um, hvernig öfgakennd kynjahugmyndafræði skaðar börn.

Börn limlest í nafni kynseginfræða

Þessir barnaníðingar fengu 100 ára fangelsi hvor um sig fyrir að halda tveimur ættleiddum sonum sínum sem kynlífsþrælum og níðast á þeim ásamt öðrum mönnum frá þriggja og fimm ára aldri.

Milei hélt áfram:

„Heilbrigð börn eyðileggjast óafturkræft með hormónameðferðum og limlestingum. Eins og að fimm ára gamalt barn geti gefið samþykki sitt fyrir einhverju slíku. Ef fjölskyldan segir nei, þá standa fulltrúar ríkisins tilbúnir til að grípa inn í til að stuðla að því sem þeir segja „að sé best fyrir hagsmuni barnsins.“

Eitt myrkasta tímabil sögunnar

Lög hafa verið innleidd í Argentínu sem LGBTQ samtökin hafa gagnrýnt. Meðal annars má ekki nota kynhlutlaust orðalag í gögnum stjórnvalda. Þá hefur þvingandi kvóti til starfa hjá því opinbera, fyrir meðal annars transfólk, verið afnuminn.

Í ræðu sinni sagði Milei kynseginfræði nútímans vera „glæpahugmyndafræði“ sem í framtíðinni verði borin saman við „myrkustu tímabil sögunnar.“ Hann gagnrýndi einnig það sem hann kallaði „frásögn fórnarlambsins“ sem notuð er til að þagga niður í gagnrýni á kynseginfræum. Milei sagði:

„Þeir dreifa um sig orðum eins og hómófóbía og transfóbía, sem eingöngu eru hugtök til að þagga niður í okkur sem þorum að fletta ofan af þessu hneyksli.“

Fara efst á síðu