Valkyrjurnar hlaupa eftir sprota von der Leyen til hægri og vinstri. Ísland inn í ESB í gær, bókun 35 í dag. Hræsnin trompar allt sem áður hefur sést á Íslandi. Trump lýst sem hræðilegri ógn við öryggi Norðurslóða og Grænlands til að þrýsta á um inngöngu Íslands í ESB. Eftir NEI kjósenda er birt súkkulaðimynd af Kristrúnu við hlið Trumps. Samningi Danmerkur, Bandaríkjanna og Grænlendinga flaggað. Sendiherra Bandaríkjanna kallaður inn á teppið, Rupío utanríkisráðherra Bandaríkjanna kysstur bak og fyrir í dag. Það versta af öllu: valkyrjurnar halda áfram að stela peningum íslenskra skattgreiðenda og dæla í drápsvélina í Úkraínu. Búið er að eyðileggja landið og rödd almennings bæði bönnuð og þögguð. Líf íbúanna í Úkraínu er lítils virði. Einskis virði hjá valkyrjum. Eftirlætisiðja þeirra er að skemmta skrattanum.
Hjálpið okkar að stöðva stríðið!
Orðin koma frá fyrrum Julia Mendel, fyrrum ritara Selenskís (sjá YouTube að neðan). Hún segir í hlaðvarpsviðtali við Daniel Dave:
„Okkur er einfaldlega bannað að segja að við viljum ekki deyja. Það er sannarlega hægt að brjóta okkur niður … Við erum á barmi útrýmingar. Hjálpið okkur að stöðva þetta stríð. Hjálpið okkur að stöðva spillinguna. Hjálpið okkur að endurreisa lýðræðið og efnahaginn í Úkraínu.“
Hún lýsir harðstjórn Selenskís og afnámi lýðræðis í landinu. Hún er af blaðamönnum á Vesturlöndum talin eini Úkraínubúinn sem vill frið í Úkraínu.En það er hvorki satt né rétt. Harðstjórn Selenskís bannar almenningi að minnast á frið. Fólki er bannað að tala um að það þjáist og vilji binda endi á stríðið. Spillingin situr við völd. Úkraína er taflborð í stórskák heimsvaldadrauma. George Soros og fylgifiskar hans beina augunum að auðlindum Rússlands eftir að hafa mjólkað Kína á ódýru vinnuafli undanfarna áratugi.
Stríðið er til að þreyta Rússana og veikja fyrir hugsanlega stórárás á landið með það að markmiði að stykkja það niður í smærri ríki. Meginfjölmiðlar Vesturlanda vilja ekki ræða þessi markmið. Frá upphafi höfum við fengið vikulega að heyra að Úkraína sé að vinna stríðið. Síðan eru liðin fjögur ár og enn er lyginni haldið á floti. Venjulegt fólk hugsar samt sitt og spyr sig hvaða ógn íbúum Evrópu stafar af Rússum sem nota hluti úr gömlum þvottavélum í byssur sínar samkvæmt lýsingu ESB. Allir spyrja sig eðlilega: Ef Rússar eru svona lélegir af hverju er þá ekki búið að sigra þá fyrir löngu síðan?
Almenningur í Úkraínu vill frið. Semja við Rússa um að þeir haldi landinu sem nú þegar er orðinn hluti af rússneska sambandsríkinu. Þar voru Rússar búsettir og kusu í kosningum, sem Vesturlönd neituðu að samþykkja, að þeir vildu tilheyra Rússlandi í stað Úkraínu. Að kljá slíkar deilur um landshluta er leið friðar, ekki stríðs. Enginn á Vesturlöndum fyrir utan Bandaríkjamenn vilja fara leið friðar í Úkraínu.
Valkyrjurnar veðja á riddara myrkursins, boðbera dauðans. Þær lifa á hræjum fallinna hermanna. Það fer að verða brýn landhreinsun fyrir Íslendinga að losna við þessa ríkisstjórn dauðans. Ef það er ekki á vígvellinum í Úkraínu, þá dauða velmegunar á Íslandi vegna skattahækkana valkyrjanna.
Valkyrjurnar kæfa alla sköpunargáfu í fæðingu. Íslendingar eiga það sameiginlegt með almenningi í Úkraínu að hafa tilfinningar. Vonandi tekst Bandaríkjamönnum að hindra að íslensk þjóð verði fyrir sömu örlögum og sú úkraínska með valkyrjum á sterum sem í skjóli framhjáhlaups við stjórnarskrána murka allt líf úr framtakssemi, vinnugleði og farsæld landsmanna.
⚠️ Iuliia Mendel: "We are on the verge of extinction… Peace Voices in Ukraine Are Being Silenced " In a powerful warning on the latest Daniel Davis Deep Dive, former Zelenskyy spokesperson Iuliia Mendel(@IuliiaMendel) argues that many Ukrainians who want an end to the war are not being heard. Mendel says the problem is no longer a lack of access to Western media, but what she describes as censorship inside Ukraine that goes "from the very top." "We’re just banned from saying that we don’t want to die." "We are very much breakable…We are on the verge of extinction." Her message is blunt: "Help us stop this war. Help us stop corruption. Help us restore democracy and economy." In Ukraine Mendel argues that this appeal for peace, reform, and national survival is "the major message that is being banned." 📺 Watch this important exchange and hear her full argument. https://t.co/cV9Dh9L10j
— Daniel Davis Deep Dive (@DanielLDavis1) October 6, 2026
