Patriots for Europe – Ættjarðarvinir fyrir Evrópu – þriðji stærsti þingflokkur Evrópuþingsins, segir niðurstöðu íslensku þjóðaratkvæðagreiðslunnar dóm yfir þróun Evrópusambandsins. Hópurinn segir Ísland sýna að efnahagsleg velgengni, alþjóðlegt samstarf og fullveldi þjóðarinnar geti farið saman utan ESB og skorar á stofnanir sambandsins að virða niðurstöðuna „án þrýstings eða endurtúlkunar“.
Patriots for Europe hefur brugðist afdráttarlaust við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi 29. ágúst, þar sem 52,8% kjósenda höfnuðu því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið en 47,2% samþykktu það. Kjörsókn var 82,5%.
Í yfirlýsingu hópsins frá Brussel 31. ágúst segir að niðurstaðan eigi ekki að túlka sem dóm yfir framtíð Íslands heldur yfir þróun Evrópusambandsins sjálfs:
„Patriots for Europe lítur á niðurstöðuna sem dóm, ekki yfir framtíð Íslands, heldur yfir það sem Evrópusambandið er orðið.“
Patriots for Europe er þingflokkur á Evrópuþinginu sem leggur sérstaka áherslu á fullveldi þjóðríkjanna og andstöðu við frekara framsal valds til stofnana ESB. Samkvæmt opinberri síðu hópsins er hann nú þriðji stærsti þingflokkur Evrópuþingsins með um 85 þingmenn.
Ísland sýni að auðug ríki þurfi ekki ESB-aðild
Patriots for Europe segir íslensku niðurstöðuna sýna að aðild að Evrópusambandinu sé ekki lengur sjálfkrafa eftirsóknarverður kostur fyrir efnahagslega farsæl og sjálfráða ríki.
Íslenskir kjósendur hafi staðið frammi fyrir því hvort færa ætti ákvarðanir um eigin málefni nær stofnunum langt frá Reykjavík — og hafnað því.
Hópurinn leggur sérstaka áherslu á að Ísland sé ekki eitthvert jaðartilvik í Evrópu.
„Ísland er ekki jaðartilvik. Það er velmegandi lýðræðisríki í Norður-Evrópu, nátengt meginlandinu í gegnum Evrópska efnahagssvæðið, en hefur nú kosið að halda fjarlægð sinni frá Evrópusambandinu sjálfu,“ segir í yfirlýsingunni.
Þetta er kjarninn í túlkun Patriots for Europe á íslensku niðurstöðunni: Ísland eigi þegar mjög náið efnahagslegt samband við Evrópu án þess að vera aðili að Evrópusambandinu.
„Hvorki háð ESB né óhóflegu skrifræði þess“
Orðalag yfirlýsingarinnar verður enn beittara þegar fjallað er um stöðu Íslands utan sambandsins. Patriots for Europe segir Ísland vera stöðugt og farsælt ríki sem sé „hvorki háð ESB né óhóflegu skrifræði þess og sívaxandi reglugerðafári.“
Íslenska dæmið sanni að mati hópsins að ekki þurfi að velja á milli alþjóðlegs samstarfs og fullveldis.
„Landið sýnir að efnahagsleg velgengni, alþjóðlegt samstarf og fullveldi þjóðarinnar eru möguleg jafnvel utan Evrópusambandsins,“ segir í yfirlýsingunni.
Þessi túlkun samræmist yfirlýstri stefnu Patriots for Europe. Hópurinn segist vilja Evrópu sterkra og sjálfstæðra þjóða og hafnar frekari yfirfærslu fullveldis til sameiginlegra stofnana ESB.
ESB virði niðurstöðuna „án þrýstings eða endurtúlkunar“
Patriots for Europe lætur ekki þar við sitja heldur beinir sérstökum tilmælum til stofnana Evrópusambandsins.
Þær eigi að samþykkja niðurstöðu íslensku þjóðaratkvæðagreiðslunnar „án þrýstings eða endurtúlkunar“.
Þar með virðist hópurinn vara við því að niðurstaðan verði afgreidd sem tímabundið bakslag eða að reynt verði síðar að endurvekja aðildarferlið án þess að taka pólitísk skilaboð íslenskra kjósenda alvarlega.
Patriots for Europe túlkar þannig íslenska NEI-ið sem hluta af mun stærri umræðu um það hvernig Evrópa eigi að þróast.
„Ekki miðstýrt ESB-ofurríki“
Lokasetning yfirlýsingarinnar er jafnframt sú pólitískt afdráttarlausasta.
„Ísland sýnir enn á ný að framtíð Evrópu liggur ekki í miðstýrðu ESB-ofurríki heldur í samstarfi frjálsra og fullvalda ríkja.“
Þetta er mun víðtækari túlkun á niðurstöðu íslensku kosninganna en sú sem komið hefur frá opinberum stofnunum Evrópusambandsins.
Patriots for Europe lítur ekki aðeins á úrslitin sem ákvörðun Íslendinga um að hefja ekki aðildarviðræður að nýju. Hópurinn gerir þau að dæmi í eigin baráttu fyrir öðruvísi Evrópu — Evrópu þar sem samstarf þjóðríkjanna byggist á því að þau haldi fullveldi sínu fremur en að færa sífellt meira vald til sameiginlegra stofnana í Brussel.
Í því ljósi eru skilaboð Patriots for Europe til Brussel skýr:
Íslenska NEI-ið var ekki dómur yfir Íslandi. Að mati hópsins var það dómur yfir því sem Evrópusambandið er orðið.
Listi yfir ríki og nöfn þeirra flokka sem tilheyra ættjarðarvinahópnum á ESB-þinginu:
| Land | Flokkur |
|---|---|
| 🇦🇹 Austurríki | FPÖ – Freiheitliche Partei Österreichs |
| 🇧🇪 Belgía | Vlaams Belang |
| 🇨🇿 Tékkland | ANO 2011 |
| 🇨🇿 Tékkland | Motoristé sobě |
| 🇩🇰 Danmörk | Dansk Folkeparti |
| 🇪🇸 Spánn | Vox |
| 🇫🇷 Frakkland | Rassemblement National (RN) – flokkur Marine Le Pen/Jordan Bardella |
| 🇫🇷 Frakkland | UDR – Union des droites pour la République |
| 🇬🇷 Grikkland | Foni Logikis |
| 🇭🇺 Ungverjaland | Fidesz |
| 🇮🇹 Ítalía | Lega – flokkur Matteo Salvini |
| 🇱🇻 Lettland | Latvia First |
| 🇳🇱 Holland | PVV – Partij voor de Vrijheid – flokkur Geert Wilders |
| 🇵🇱 Pólland | Ruch Narodowy |
| 🇵🇹 Portúgal | Chega |

