Elliði Vignisson gagnrýnir það sem hann telur mótsögn í samstarfi róttækra vinstrimanna og íslamistahreyfinga í grein í Morgunblaðinu í dag. Hann segir sameiginlega andstöðu við vestræn stjórnvöld geta skyggt á grundvallarágreining um mannréttindi, jafnrétti og einstaklingsfrelsi.
Í greininni, sem ber yfirskriftina „Tengsl íslamista og róttæka vinstrisins“, fjallar Elliði um hvernig Palestínumál hafi orðið sameiginlegur pólitískur vettvangur ólíkra hópa. Hann nefnir bæði erlend dæmi og tengsl íslenskra vinstriflokka, Palestínusamtaka og hluta verkalýðs- og stúdentahreyfingarinnar.
Elliði tekur fram að palestínski fáninn sé fyrst og fremst „tákn palestínsku þjóðarinnar og rétt hennar sjálfsákvörðunar.“ Hann telur að fáninn hafi einnig orðið tákn víðtækara andófs gegn vestrænum stjórnvöldum og vestrænni menningu. Barátta vinstrimann gegn kapítalismanum hefur sameinast pólitískrar baráttu íslams um yfirráð yfir samfélögum og koma á eigin lögum sem ekki samrýmast vestrænum gildum. Elliði skrifar:
„Palestínufáninn getur sameinað róttæka vinstrið og róttæka íslamista í andstöðu við vestræna valdaskipan. Undir fánanum eru ólík mál felld inn í eina frásögn: kúgarar gegn kúguðum, heimsveldi gegn andspyrnu. Þegar sú frásögn er látin skýra öll vandamál heimsins verður fáni palestínsku þjóðarinnar tákn víðtækari pólitískrar baráttu sem oft beinist gegn vestrænum gildum og samfélagsskipan. Það er mikið hlutverk að leggja á einn fána.“
Meginrök hans eru að vinstrimenn sem segjast verja veraldlegt samfélag, jafnrétti kynjanna og réttindi hinsegin fólks þurfi að horfast í augu við þau gildi sem samstarfsaðilar þeirra standi fyrir. Hann telur ósamræmi felast í því að verja þessi réttindi en styðja um leið hreyfingar sem vilji láta trúarreglur ráða samfélaginu.
„Það er lítils virði að berjast fyrir mannréttindum, jafnrétti og einstaklingsfrelsi ef maður er um leið tilbúinn að slá skjaldborg um hópa fólks sem vilja grafa undan sömu gildum,“ skrifar Elliði.
Hann leggur áherslu á að spurningar um pólitíska notkun palestínska fánans séu hvorki árás á Palestínumenn né múslíma. Niðurstaða hans er að stuðningur við málstað leysi engan undan því að skoða markmið og hugmyndafræði þeirra hreyfinga sem hann starfar með. Elliði endar grein sína á þessum orðum:
„Vinstrimenn ættu að hafa hugfast að óvinur óvinar míns er ekki endilega vinur minn. Það er lítils virði að berjast fyrir mannréttindum, jafnrétti og einstaklingsfrelsi ef maður er um leið tilbúinn að slá skjaldborg um hópa fólks sem vilja grafa undan sömu gildum. Umburðarlyndi má aldrei verða að undanlátssemi gagnvart þeim sem hafna því sjálfir.“
