Kona gekk berserkjargang með hníf í miðborg Hamborgar í gær og særði að minnsta kosti 18 manns. Konan sem fjölmiðlar segja að sé þýsk var handtekin eftir árásina.
Þetta er önnur hnífsstunguárásin á stuttum tíma í Þýskalandi. Fyrr í vikunni var hnífaárás í Bielefeld í Þýskalandi, þar sem fimm manns voru alvarlega særðir fyrir utan bar. Verið er formlega að rannsaka það mál sem hryðjuverk með íslömskum formerkjum. Ódæðismaðurinn í Bielefeld er sýrlenskur ríkisborgari að nafni Mahmoud Mhemed og er talinn hafa orðið róttækur vígamaður á meðan hann dvaldi í Þýskalandi. Samskipti hans við þekkta íslamista sem tengjast fyrri hryðjuverkasamtökum eru staðfest með gögnum.
Á föstudagskvöldið var hnífaárásin gerð á aðallestarstöðinni í Hamborg. Fréttastofan Reuters greinir frá því að 18 manns hafi særst. 39 ára gömul kona, sem lýst er sem „þýskri“ var handtekin grunuð um glæpinn. Fórnarlömbin voru valin af handahófi samkvæmt réttum.
Ýmsar raddir gefa í skyn að hnífaárásirnar, sem hafa hrjáð Þýskaland í mörg ár, gætu verið framkvæmdar til að styrkja innflytjendaandstæðinga- og íhaldsflokkinn Alternative für Deutschland (AFD). Jafnframt er ýjað að því að „erlent vald“ geti verið að baki með vísun til Rússlands án þess að segja það beint út.