Tveir áberandi talsmenn þess að Ísland tæki upp aðildarviðræður við Evrópusambandið hafa tengst verkefnum sem fjármögnuð eru af ESB í gegnum Jean Monnet-áætlun sambandsins. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, segir mikilvægt að almenningur viti af slíkum fjárhagslegum tengslum þeirra sem taka virkan þátt í umræðunni um ESB-aðild.
Morgunblaðið greinir frá þessu í dag eftir viðtal við Hannes í Spursmálum. Þar nefnir hann sérstaklega Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, og Magnús Árna Skjöld Magnússon, prófessor við Háskólann á Bifröst og formann Evrópuhreyfingarinnar. Báðir voru áberandi í umræðunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst um hvort hefja ætti aðildarviðræður við ESB að nýju.
7,5 milljónir til kennslu Baldurs
Baldur hlaut Jean Monnet-stöðu á sviði Evrópufræða við Háskóla Íslands. Samkvæmt Morgunblaðinu fylgdi henni 7,5 milljóna króna fjárframlag til kennslu. Blaðið reiknar að sú fjárhæð samsvari um 18 milljónum króna á núverandi verðlagi. Háskóli Íslands tilgreinir Baldur enn sem Jean Monnet Chair í Evrópufræðum. Hannes segir að þegar Jean Monnet-staða Baldurs var kynnt á sínum tíma hafi hann fagnað henni sérstaklega og sagt:
„Ég var alveg viss um það að Baldur hefði unnið fyrir hverri einustu evru sem hann hefði fengið frá Evrópusambandinu.“
Magnús með þriggja ára verkefni fjármagnað af ESB
Magnús Árni Skjöld Magnússon hlaut síðan Jean Monnet-styrk árið 2025 vegna þriggja ára verkefnis við Háskólann á Bifröst. Verkefnið nefnist Iceland’s Strategic Role in Arctic and European Security og stendur frá 2025 til 2028. Háskólinn á Bifröst segir að verkefnið sé fjármagnað af Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ og að það styðji meðal annars við markmið ESB um að efla þekkingu og umræðu um Evrópusamrunann og Evrópumál innan og utan háskóla.
Verkefninu er ætlað að efla kennslu og rannsóknir á Evrópufræðum, öryggis- og varnarmálum og norðurslóðum. Jafnframt á það að skapa vettvang fyrir umræðu fræðasamfélagsins, stjórnvalda, fjölmiðla og almennings um tengsl Íslands við Evrópu. Magnús leiðir verkefnið og samkvæmt tilkynningu Bifrastar þegar styrkurinn var veittur felur hann meðal annars í sér markvissa eflingu Evrópufræða við háskólann. Undir merkjum þess hafa þegar verið haldnir opinberir viðburðir og ráðstefnur.
Almenningur þarf að vita af tengslunum – Hannes Gissurarson vinnur starf sem RÚV á að gera samkvæmt lögum en gerir ekki
Hannes segist ekki vera á móti því í sjálfu sér að Evrópusambandið fjármagni starfsemi af þessu tagi á Íslandi. Ísland sé Evrópuþjóð og eigi að hafa góð samskipti við ESB. Hann telur hins vegar að annað sjónarmið komi til þegar einstaklingar sem tengjast ESB-fjármögnuðum verkefnum verða jafnframt áberandi þátttakendur í íslenskri pólitískri umræðu um aðild að sambandinu.
„Við þurfum bara að vita af þessu að þessir menn eru launaðir af Evrópusambandinu,“ segir Hannes.
Þegar hann er spurður hvort þessi tengsl hafi ekki verið nægilega sýnileg almenningi svarar hann:
„Ja, ég held að enginn hafi kannski hugsað út í þetta.“
Ríkisútvarpið kom með þá fáranlegu ásökun að Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefði fjármagnað Brexit á sínum tíma með 7 milljónum króna á árunum 2014-2017. RÚV hafði ekki einu sinni fyrir því að bera fréttina beint undir Hannes en um var að ræða útgáfu bóka á vegum Almenna bókafélagsins um fórnarlömb nazismans í Evrópu sem hefur ekkert með Brexit að gera.
RÚV tekur sjálft á móti hundruðum milljónum króna í styrki frá ESB og básúnaði út Já-áróðri í kosningabaráttunni. Má því segja að þar hitti RÚV sig sjálft fyrir, því RÚV upplýsir ekki almenning um styrki ESB til stofnunarinnar frekar en að segja frá styrkjum ESB til forystumanna JÁ-hreyfingarinnar. Þjóðólfur mun birta aðra grein um þessa aðferðafræði RÚV sem Alþingi ætti að láta rannsaka sérstaklega.
