ABC tapari kappræðna Harris & Trump

ABC ameríska sjónvarpstöðin var tapari kvöldsins í kappræðum Kamilu Harris og Donald Trump. ABC vaggar rófu í eigu eins spillasta og svartasta fyrirtækis  Ameríku, hinu sataníska Disney Company sem hlekkir unga huga í viðjum illsku. Meðan þessir þrælahlekkir eru ekki rofnir þá getum við ekki vænst hlutleysis, jafnræðis og málfrelsis í Ameríku. ABC er ein helsta málpípa Co-Oporate Ameríku sem hlekkjar bandarískt alþýðufólk; Big-Pharma, Big-Food, Big-Money, forheimskar þjóðina gert hina veikustu og feitustu í heimi, börn eitursprautuð 16 sinnum 0-6 ára og svo endalausar styrjaldir. Fósturdráp fram á síðasta dag fær ekki umræðu falsmiðla því þau þola ekki dagsljós.

Þetta sást í kappræðunum en svona hefur Ameríka verið um langan aldur. Það er ekki virkt lýðræði í Ameríku. Staðreyndatékk var einhliða. Harris augljóslega undirbúin fyrirfram fyrir spurningar. Spillingin smitar til Íslands. Það var ekki fyrr en fyrir átta árum sem augu almennings tóku að opnast fyrir svikamyllunni þegar guli karlinn kom niður rúllustigann í Trump-Tower. Augu almennings hafa opnast fyrir illsku Endalausra styrjalda og lyfjarisa svo nú á sér stað fordæmalaus vitundarvakning; Awakening.

Ekki orð um banatilræðið í Butler

Hugsið ykkur, ekki orð um banatilræðið 13. júlí þegar Trump var skotinn í Butler Pennsylvaníu en vék sér undan skotinu á óútskýranlegan hátt. Fram hefur komið refsivert athæfi og vanhæfni FBI og Secret Service undir Biden/Harris-stjórninni. Banatilræðið er þaggað af amerískum falsmiðlum. Morðið á John F. Kennedy 1963 og tilræðið á Donald Trump 2024 er sópað undir teppi. Þurrkað var yfir fall 13 bandarískra hermanna sem voru drepnir grimmilega þegar Bandaríkin fóru frá Afganistan 2023 og skildu eftir sig vopn að andvirði tug milljarða dollara. Harris kvað þetta ákvörðun Biden! Harris og Biden sýndu fjölskyldum enga samúð, engin samskipti, ekki einu sinni símtal til syrgjandi foreldra sem fengu Trump til að leggja blómsveig að minnisvarða hinna látnu í Arlington-kirkjugarðinum. ABC straujaði yfir þessa mestu niðurlægingu Ameríku frá Víetnam flóttanum 1975.

ABC málpípa Harris

ABC var einfaldlega málpípa Harris. Það var raunar vitað fyrirfram. Harris státaði af stuðningi hins alræmda neo-con Dick Cheney! ABC straujaði yfir afleiðingar opinna landamæra sem valda glæpabylgju í Ameríku, mansali, barnsali, 390 þúsund börn hafa horfið á liðnum árum sem Harris stjórnaði landamærunum kölluð Border-Zar aldrei farið að landamærunum. Glæpaklíkur stjórna landamærunum. Smygl á fentanyl veldur árlega dauða um 150 þúsund ungs fólks. Ekki orð um skuggahliðar transvæðingar. Ekkert var gert með óðaverðbólgu í Ameríku. ABC kenndi Trump um J6 2021 þegar milljón manns komu saman til mótmæla kosningasvikunum. Þá voru dyr þingsins opnaðar og FBI smalaði fólki inn í Þinghúsið; Capitol. ABC blammeraði Trump fyrir að halda því fram að kosningasvik hafi verið framin 2020. Það var gert í skjóli covid með smölun póstatkvæða; Mail-in-Ballot og kosningavélum Dominon; Coup-d‘Etat í Washington. Seníll Joe Biden sem hélt ekki marktækan kosningafund kom upp úr kjallaranum í Delaware 2020. Karlinn var settur til hliðar í kjölfar skotárásarinnar í Butler þar sem sjónvarpsstöðvar voru á vettvangi líkt og Dallas 1963. Einnig spilaði inn í að Biden er heilabilaður; ruglaðist á Trump og Harris; Putin og Zelinsky frammi fyrir BjarnaBen á 75 ára afmæli Nato. BjarnaBen fannst karliun bara flottur! Þá var bara skipt um hross í miðri á og hryssan Harris gerð að frelsisgyðju. Svona sturluð er Ameríka og ritskoðarans RÚV á Íslandi.

Fara efst á síðu