Áætlun um sjálfstæði Alberta gerir ráð fyrir aðskilnaði frá Kanada í þremur áföngum

Alberta gæti orðið sjálfstætt ríki án þess að byggja þurfi stjórnkerfi þess frá grunni, samkvæmt samantekt skýrslunnar Alberta Transition Plan. Þar er lagt til að hugsanlegur aðskilnaður frá Kanada verði undirbúinn í þremur áföngum, með áframhaldandi opinbera þjónustu og stöðugleika í daglegu lífi að leiðarljósi. Kostnaðarmat liggur þó ekki fyrir í samantektinni og niðurstaða samninga við Kanada og aðra aðila er óviss.

Áætlunin fjallar um hvernig standa mætti að breytingu Alberta úr kanadísku fylki í sjálfstætt ríki, ákveði íbúar þess að fara þá leið. Samkvæmt samantektinni tóku 45 íbúar Alberta, með reynslu og sérþekkingu á fjölbreyttum sviðum, þátt í gerð og yfirferð 21 sérfræðiskýrslu sem áætlunin byggist á. Meðal viðfangsefna voru gjaldmiðils- og bankamál, lögfræði, alþjóðaviðskipti, málefni frumbyggja, varnarmál, samgöngur, landamæri og löggæsla.

Meginniðurstaða höfunda er að Alberta búi þegar yfir stórum hluta þeirra stofnana og innviða sem sjálfstætt ríki þurfi. Þar séu starfandi ríkisstjórn, þing, dómstólar, sveitarfélög, heilbrigðis- og menntakerfi, fyrirtæki og sérhæft starfsfólk.

Verkefnið felist því fyrst og fremst í að færa eða leysa af hólmi verkefni alríkisstjórnar Kanada, tryggja lagalegan grundvöll starfseminnar og koma á fót þeim þáttum ríkisvaldsins sem Alberta þurfi ekki að sinna sem fylki.

Undirbúningur, samningar og sjálfstæði

Í áætluninni er miðað við þriggja áfanga ferli. Fyrsti áfanginn hæfist ef íbúar samþykktu í atkvæðagreiðslu 19. október 2026 að halda undirbúningi áfram. Alberta yrði áfram fylki í Kanada á því tímabili.

Þá gætu stjórnvöld meðal annars skipað verkefnisstjórn, yfirfarið fyrirliggjandi rannsóknir, unnið nánara kostnaðarmat, skráð eignir og gögn og undirbúið samningsmarkmið. Einnig yrði hafið samráð við frumbyggjaþjóðir og aðra hagsmunaaðila.

Annar áfanginn hæfist ef sjálfstæði yrði samþykkt í sérstakri þjóðaratkvæðagreiðslu, sem höfundar miða í áætlun sinni við að færi fram vorið 2027. Tekið er fram að slík niðurstaða myndi ekki sjálfkrafa gera Alberta að sjálfstæðu ríki.

Við tækju formlegar samningaviðræður og undirbúningur framkvæmdarinnar. Meðal samningsefna yrðu skipting skulda, eigna og skuldbindinga, viðskipti, landamæri, lífeyrir, bankastarfsemi, samgöngur og yfirfærsla verkefna alríkisins. Einnig þyrfti að fjalla um réttindi frumbyggja og gildandi samninga við þá.

Þriðji áfanginn hæfist á sjálfstæðisdegi. Þá tæki ríkisstjórn Alberta við viðbótarábyrgð sjálfstæðs ríkis, en tímabundnir þjónustusamningar og önnur bráðabirgðaúrræði gætu áfram verið í gildi. Í áætluninni er miðað við allt að 24 mánaða skipulagstímabil eftir sjálfstæðisdag vegna slíkra ráðstafana, án þess að um ófrávíkjanleg lokamörk væri að ræða.

Engin föst dagsetning fyrir sjálfstæði

Höfundar leggja áherslu á að sjálfstæðisdagur ráðist af því hvenær nauðsynlegir samningar, lagalegar ráðstafanir og lykilkerfi séu tilbúin. Ekki eigi að láta fyrirfram ákveðna dagsetningu ráða ferðinni.

Markmiðið sé að laun, lífeyrir og bætur greiðist áfram, bankar og fyrirtæki starfi, dómstólar haldi störfum sínum og fólk og vörur komist yfir landamæri.

Jafnframt er lagt til að leitast verði við að halda í þekkingu alríkisstarfsmanna sem búa og starfa í Alberta. Það gæti meðal annars gerst með samningum um flutning starfsfólks, ráðningum eða tímabundnu samstarfi um þjónustu.

Ný stjórnarskrá í sérstöku ferli

Gerð varanlegrar stjórnarskrár yrði aðskilin frá sjálfu sjálfstæðisferlinu. Samkvæmt tillögunni myndu núverandi þing, ríkisstjórn, stjórnsýsla og dómstólar halda áfram störfum samkvæmt bráðabirgðafyrirkomulagi.

Sérstakt stjórnlagaþing ynni síðan tillögu að varanlegri stjórnarskrá sem borin yrði undir íbúa. Með þessu vilja höfundar koma í veg fyrir að leysa þurfi öll álitamál um framtíðarstjórnskipan áður en sjálfstæði gæti tekið gildi.

Samningar og kostnaður enn óvissuþættir

Í samantektinni er sérstaklega varað við því að líta á æskilega niðurstöðu samninga sem tryggða. Samstarf við Kanada um viðskipti, samgöngur, orkuinnviði og fjármál væri mikilvægt markmið, en háð samkomulagi. Sama ætti við um alþjóðlega viðurkenningu og samninga við önnur ríki og alþjóðastofnanir.

Áætlunin inniheldur hvorki ítarlegt mat á kostnaði við umskiptin né heildarmat á fjárhagslegum áhrifum sjálfstæðis. Samkvæmt samantektinni er sérstök skýrsla um þau atriði í vinnslu og er ætlunin að birta hana fyrir atkvæðagreiðsluna 19. október.

Niðurstaða höfunda er að aðskilnaður yrði flókinn, en unnt væri að undirbúa hann og framkvæma með skipulegum hætti. Mælikvarðinn á árangur yrði fyrst og fremst hvort daglegt líf og nauðsynleg þjónusta héldu áfram að ganga meðan ábyrgð á stjórnsýslu, fjármálum og löggjöf færðist til sjálfstæðs Alberta.