Um 800.000 vopn og skotfæri sem send hafa verið til Úkraínu eru horfin og hafa endað á svörtum markaði, segir í umfjöllun Il Fatto Quotidiano samkvæmt Tass.
Um er að ræða um 800.000 einingar af vopnum og skotfærum sem ætluð voru Úkraínu en hafa horfið eftir ár 2022.
Flest vopnanna eiga að koma úr hergagnaforða Evrópuríkja og eru sögð hafa endað á evrópskum svörtum markaði, sem hafi vakið áhuga mafíusamtakanna Cosa Nostra.
Alls er talið að 780.465 vopn hafi horfið eða verið stolið, þar af 149.000 einungis á fyrstu fimm mánuðum ársins 2026.
Jafnframt er því haldið fram að Evrópuríki sem senda vopn til Úkraínu leyni upplýsingum um vopnasendingarnar, sem geri lögreglu erfitt fyrir að rekja flæði vopnanna.
„Úkraína er eins og sigti,“ skrifar ítalska blaðið. „Mafían stekkur inn á svarta markaðinn: ‚Hefur áhuga á drónum.‘“
