80 prósent allra vandamála koma frá Evrópusambandinu

Aðild að ESB felur fyrst og fremst í sér alls kyns vandamál. Þessu heldur þýski Evrópuþingmaðurinn Christine Anderson fram í viðtali (sjá X að neðan).

Christine Anderson gagnrýnir ESB-aðild harðlega í viðtali við Fidias Panayiotou Hún segir hana fyrst og fremst hafa í för með sér alls kyns vandamál.

– 80 prósent allra vandamála í landinu þínu og í þínu persónulega lífi… aukinn kostnaður, ritskoðun og allt það… 80 prósent af þessu öllu kemur frá ESB, heldur hún fram.

Lönd eru lokkuð inn með ýmiss konar loforðum en hvert land þarf síðan að kyngja ýmsu sem það vill í raun alls ekki kyngja. Og þegar aðildarríki segja síðan nei er skrúfað fyrir fjárveitingar til þeirra.

– Þetta eru fjárkúganir, segir Anderson.

ESB er orðið svo einræðislegt að það viðurkennir ekki einu sinni nei frá eigin þingi.

– Jafnvel þótt þingið segi nei við einhverju er þeim (framkvæmdastjórn ESB) alveg sama. Þau taka nei ekki sem svar. Við sáum það einmitt þegar við sögðum nei við Chat Control.

– Fólk eins og þú og ég, við segjum frá því sem þau eru í raun að gera. Þau eru að afnema lýðræðið, þau ritskoða samfélagsmiðla. Og þess vegna líkar þeim ekki við þig, því þau vilja ekki að fólk viti hvað er að gerast hér.