Ný skýrsla sem kynnt var á fundi Rannsóknarmiðstöðvar um samfélags- og efnahagsmál (RSE) varpar nýju ljósi á utanríkisviðskipti Íslands og sýnir fram á að ekki er rétt með farið þegar rætt er um að um 70% af útflutningi Íslands fari til ESB-ríkja.
Samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins segir Ragnar Árnason, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, að skýrslan sýni að myndin sé mun flóknari en oft sé haldið fram. Hann segir að hlutdeild ESB í heildarútflutningi Íslands sé í raun um helmingur, en ekki 70%.
Endanlegur áfangastaður skiptir máli
Í skýrslunni er bent á að hefðbundnar útflutningstölur byggist oft á því hvert vörur eru sendar fyrst, en ekki áfangastað að lokum. Þannig birtast til dæmis miklir útflutningsstraumar til Hollands vegna Rotterdam-hafnar, þótt vörurnar séu síðar fluttar áfram til annarra landa.
Höfundar telja því að slíkar tölur gefi ekki alltaf rétta mynd af raunverulegum viðskiptasamböndum Íslands.
Bandaríkjadalur mikilvægari en evran
Í skýrslunni kemur einnig fram að bandaríkjadalur sé mikilvægasti gjaldmiðillinn í utanríkisviðskiptum Íslands, en ekki evran. Samkvæmt niðurstöðunum fara flest utanríkisviðskipti Íslands fram í dollurum, sem endurspeglar meðal annars mikilvægi sjávarútvegs og alþjóðlegra hrávörumarkaða.
Samkvæmt samantekt skýrslunnar eru helstu niðurstöður meðal annars:
- Landskipting vöruútflutnings getur verið villandi vegna umskipunarhafna.
- Þjónustuútflutningur vegur sífellt þyngra í íslensku hagkerfi.
- Utanríkisviðskipti Íslands fara að stærstum hluta fram í bandaríkjadölum en ekki evrum.
- Hlutdeild ESB-ríkja í heildarútflutningi Íslands er um helmingur en ekki 70%.
Getur haft áhrif á ESB-umræðuna
Niðurstöðurnar koma fram á sama tíma og umræðan um samskipti Íslands við Evrópusambandið er í brennidepli. Ef skýrslan stenst nánari skoðun gæti hún haft áhrif á þá umræðu með því að draga fram að viðskiptatengsl Íslands séu fjölbreyttari en oft hefur verið haldið fram og að mikilvægi markaða utan ESB sé meira en algengt er að gera ráð fyrir.
Skýrslan var unnin af Arnari Arinbjarnarsyni og Roberti Bragasyni hja Samtökum skattgreiõenda fyrir RSE og má lesa hér að neðan:
