50 prósent vangadans í Kanada

Samningsaðferðir Donald Trumps vekja athygli og ekki eru allir á eitt sáttir um þær. Trump er þó samkvæmur sjálfum sér að setja hagsmuni Bandaríkjanna ofar öllu öðru og líta verður á aðferðir hans í viðskiptasamningum við önnur ríki sem samningatækni sem hann hefur þróað gegnum árin, ekki síst í byggingariðnaðinum áður en hann fór að bjóða sig fram til opinberra embættisstarfa. Það sem vefst fyrir ýmsum sem ekki þekkja til, er að hann er að efna loforð til kjósenda sinna um fleiri störf og fyrirtæki og betri velmegun. Trump er öðru vísi en flest allir vestrænir stjórnmálamenn nútímans: Hann stendur við gefin loforð. Hann gerir það sem hann segist ætla að gera og hann segir það sem hann ætlar að gera. Þetta mættu íslenskir stjórnmálamenn taka sérstaklega til sín á tímum landsölu, árása á fyrirtæki í sjávarútvegi og öðrum greinum og árásum á kjör almennings með hærri verðbólgu og minnkandi atvinnu.

Karl Gunnarsson flugstjóri í Kanada er lesendum Þjóðólfs að góðu kunnur. Hann hefur mikla alþjóðlega reynslu og þekkingu sem hann miðlar til annarra. Að vanda var hann hress en umræðuefnið að þessu sinni er hótun Trumps Bandaríkjaforseta að leggja á 50 prósent tolla á ýmsar vörur frá Kanada. Eðlilega eru miklar umræður um málið í Kanada og margt meira komið áður í ljós en þessi hótun sem Karl segir að sé táknræn fyrir samningatækni Trumps. Fyrst er slegið til með hótun sem síðan er samin út af borðinu og komist að samkomulagi um oft á tíðum mun lægri ef þá nokkra tolla.

En það er saga og aðdragandi að tollastríði dagsins. Í tvö ár hafa Kanadamenn ekki selt áfengi frá Bandaríkjunum og í fyrri átökum fór Mark Carney til Kína og opnaði á innflutning gríðarlegs magns af kínverskum rafbílum til Kanada sem sneið gegn Trump sem vill nánara samstarf við grannann. Það samstarf snýst ekki minnst um að draga sameiginlega úr kínverskum áhrifum, sem eru að leggja bílaiðnað Evrópu í rúst og er áskorun fyrir hefðbundna bandaríska bílaframleiðendur.

Töluverður tími viðtalsins fer einmitt í að rekja samskipti kanadískra stálframleiðenda og bandaríska bílafyrirtækja sem sum, eins og til dæmis Ford, hafa eigin verksmiðjur Kanada megin. Ljóst er að Kínverjar eru sigurstranglegir í samkeppninni og telur Karl þá vera með nýja, þróaða tækni sem gerir að fljótar verði að hlaða rafmagni á geyma bílanna en er í dag. Hann horfir bjartsýnisaugum til rafmagnsbíla framtíðarinnar og telur að með þróun tækninnar séu þeir komnir til að vera, þótt eitthvað verði áfram um bensín og dísel bíla.

Kosið verður um það í Alberta héraði í Kanada, hvort það eigi að skilja við Kanada og verða eigið, fullvalda ríki. Verður fróðlegt að fylgjast með þeim kosningum sem verða 19. október næstkomandi.

Og svo er það hann Trudeau. Kanadamenn gera gys að honum en eftir að hrökklaðist frá völdum hefur tekið upp á því að dansa tik tok í lögum ástmeyjunnar sem annars birtir eldfim myndskeið af sér syngjandi sjáum hana brenna inni í kirkju.

En íslenska hljómsveitin Hljómar söng einu sinni eitt frægasta lag fyrir vangadans sem komið hefur á Íslandi: Þú og ég. Spurningin er hvort 50 prósent tollarnir endi í einum slíkum eftir eftirgjöf Mark Carney til Donald Trumps um helming afnotagjalda sem tekin verður af bílum fyrir að keyra yfir hina nýju brú sem byggð hefur verið skammt frá hinni einu og sönnu sendiherrabrú. Sú brú hefur brúað bilið milli Kanada og Bandaríkjanna árum saman. Með tveimur brúm ættu líkurnar að tvöfaldast að Carney og Trump endi í niðurstöðu sem báðar þjóðirnar geti sætt sig við.

Hlustaðu á þáttinn með því að smella á spilarann hér að neðan: