Konur í litla enska þorpinu Piddington í Oxfordshire hafa sent kvenkyns þingmönnum Bretlands opið bréf þar sem þær biðla til þeirra um að grípa inn í áform stjórnvalda um að koma upp hælisleitendamiðstöð fyrir 1.256 einhleypa fullorðna karla við jaðar þorpsins.
Piddington telur aðeins um 350 íbúa.
Konurnar, sem kalla hóp sinn Women of Piddington, hafa einnig birt myndband þar sem þær lýsa áhyggjum af öryggi sínu verði áformin að veruleika.
„Við erum 133 konur sem búum í litlu dreifbýlissamfélagi. Ríkisstjórnin hyggst opna opna hælisleitendamiðstöð fyrir 1.256 karla rétt við þorpið okkar,“ segir í bréfinu.
Þær draga síðan fram stærðarhlutföllin:
„Þeir yrðu tífalt fleiri en við.“
GB News greinir frá málinu og birtir jafnframt myndband kvennanna.
Óttast um öryggi sitt
Fyrirhugað er að koma hælisleitendunum fyrir á fyrrverandi hernaðarsvæði við þorpið. Um er að ræða einhleypa fullorðna karlmenn og samkvæmt upplýsingum stjórnvalda verður þeim heimilt að fara af svæðinu og koma aftur allan sólarhringinn, svo framarlega sem þeir skrá ferðir sínar.
Konurnar beina ákalli sínu sérstaklega til kvenna á breska þinginu og biðja þær að yfirgefa ekki konurnar í Piddington. Þær óttast að breytingin muni hafa veruleg áhrif á öryggistilfinningu þeirra og daglegt líf.
GB News hefur einnig greint frá upplýsingum um að allt að 3.500 hælisleitendur gætu síðar verið vistaðir á svæðinu. Breska innanríkisráðuneytið hefur hins vegar hafnað þeirri tölu.
Áformin hafa vakið gríðarlega andstöðu í Piddington. Íbúarnir hafa jafnvel rætt um að lýsa þorpið sjálfstætt frá Bretlandi í mótmælaskyni og halda um það staðbundna þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þegar kannaður var stuðningur íbúa við að halda áfram með það framtak sögðu 178 já en aðeins sjö nei.
„Hvernig á kerfið að ráða við 1.250 til viðbótar?“
Áhyggjur íbúanna snúast ekki eingöngu um öryggi. Þeir benda einnig á að innviðir þessa litla samfélags séu engan veginn hannaðir fyrir svo mikla fólksfjölgun.
Meðal annars hefur verið bent á takmarkaða þjónustu og vatnsskort sem þegar kemur reglulega upp yfir sumarmánuðina.
Bóndinn Richard Priddle orðaði vandann með einföldum hætti:
„Við glímum nú þegar við vatnsskort hér á sumrin með 350 manns. Hvernig í ósköpunum á kerfið að ráða við 1.250 til viðbótar?“
Verði áformin framkvæmd myndi íbúafjöldi á svæðinu þannig margfaldast nánast á einni nóttu. Hópurinn Women of Piddington segir að konurnar vilji nú fá skýr svör frá þeim stjórnmálamönnum sem taka ákvörðunina – og sérstaklega frá konunum sem sitja á breska þinginu.
