Verið að skipta út íbúunum beint fyrir framan nefið á okkur

Svíþjóðardemókratinn Richard Jomshof er formaður dómsmálanefndar sænska þingsins og talsmaður stefnu Svíþjóðademókrata sem kenna aðallega sænskum krötum um að vera að eyðileggja Svíþjóð með því að hrúga milljónum manns inn í landið frá Miðausturlöndum og Afríku. Þrátt fyrir náið samstarf Svíþjóðardemókrata við sænsku ríkisstjórnina hefur ekki tekist að breyta neinu í innflytjendamálum. Ríflega 100 þúsund manns eru innflutt árlega til Svíþjóðar.

Richard Jomshof skrifaði nýlega á X (sjá að neðan):

„Hvað sem þú velur að kalla það, þá er ljóst að innflytjendastefnan sem fylgt er, hefur skapað víðtæk vandamál, ekki bara í Svíþjóð heldur um alla Vestur-Evrópu. Við sjáum það ekki síst í aðskilnaði, íslamavæðingu, klíkuhópaglæpum og skipulagðri glæpastarfsemi.

Við getum líka séð hvernig skólar, úthverfi og jafnvel heilar borgir fengu nýjan meirihluta íbúa. Þetta er í samræmi við það að frumbyggjar í hinum ýmsu löndum Vestur-Evrópu kjósa að flytja eða flýja frá þeim vandamálum sem sósíalistar og frjálslyndir hafa skapað. Hægt og bítandi er íbúum skipt út fyrir nýja frá Miðausturlöndum og Norður-Afríku. Hægt og bítandi er verið að breyta tryggum löndum Evrópu í fjölmenningarleg íslamavædd rusllönd.

Spurningin sem við verðum að spyrja okkur er auðvitað, hvers vegna þeir hafa valið að fylgja þessari sjálfseyðingarstefnu. En líka hvers vegna þú velur að afneita tilvist þess, hvers vegna þú velur að saka þá sem benda á vandamálin sem lygara. Því þetta er ekki goðsögn, þetta er staðreynd. Íbúaskiptin eiga sér stað beint fyrir framan augum okkar.”

Fara efst á síðu